Fasteignaleitin
Skráð 25. ágúst 2026

Vesturtún 23

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
131.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
1.063.878 kr./m2
Fasteignamat
108.400.000 kr.
Brunabótamat
76.450.000 kr.
Mynd af Arinbjörn Marinósson
Arinbjörn Marinósson
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Byggt 1996
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2224941
Landnúmer
123586
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Andri Freyr Halldórsson lgfs. & Lind fasteignasala kynna með stolti:
Vel skipulagt & fallegt einbýlishús í vinsælu hverfi á Álftanesi. Húsið er með þremur til svefnherbergjum og er á einni hæð. Stór og falleg timburverönd.
Stórt og rúmgott bílastæði. Samtals 131.5 fm. Húsinu fylgir byggingaréttur á bílskúr, það fylgja tvær teikningar samþykktar. Önnur teikningin er 35m2 og hin 45m2.

Skráð stærð eignar skv. FMR er 131,5 fm. Virkilega sjarmerandi hús sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veita:
Arinbjörn Marinósson lgfs  // 822-8574 // ARINBJORN@FASTLIND.IS
Andri Freyr Halldórsson lgfs  // 762-6162 // ANDRI@FASTLIND.IS


*Húsinu fylgir byggingaréttur á bílskúr, það fylgja tvær teikningar samþykktar. Önnur teikningin er 35m2 og hin 45m2.*

*Einbýli á einni hæð. 
*Nýlega endurnýjað baðherbergi.
*Nýleg og falleg timburverönd um 95.fm.
*Nýlega endurnýjuð gólfefni & hurðar í herbergjum. 
*Stór eignarlóð 808.fm
*Góð viðhaldssaga.


Forstofa: með flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa: í björtu alrými. -Stórir og bjartir gluggar.
-Útgengt er úr stofu út á glæsilega 95.fm timburverönd – tilvalið fyrir notalegar stundir utandyra.
Eldhús: er bjart og aflokað að hluta með eyju og borðkrók. Falleg eikar innrétting frá GKS. Eldhús er rúmgott með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp, ofn er í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi 1: með nýlegu harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi 2: með nýlegu harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 3: er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi og er um 12.fm með nýlegu harðparketi á gólfi.
-Möguleiki á 4. svefnherberginu þar sem sjónvarpsherbergi var breytt í eitt rými á sínum tíma.
Baðherbergi: nýlega er endurnýjað (2023) með fallegum ljósum flísum í hólf & gólf. -Walk-in sturta með glerþili, upphengt salerni og snyrtilega innréttingu, handklæðaofni og glugga.
Þvottahús: með tengi fyrir skolvask, stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Bílskúrsréttur: húsinu fylgir byggingaréttur á bílskúr, það fylgja tvær teikningar samþykktar. Önnur teikningin er 35m2 og hin 45m2
Geymsla: 4fm. geymsla er innan íbúðar.

Geymsluskúr/verkfæraskúr: einangraður 12m2. Smíðaður 2017.
Bílastæði: mjög rúmgott bílaplan.
Lóð: fallega og vel hirt 808 fm. lóð,
- Miklir möguleikar 


Álftanes er eftirsótt og fjölskylduvænt hverfi sem nýtur einstakrar náttúrufegurðar og rólegs andrúmslofts. Svæðið er umkringt fallegum strandlengjum, gönguleiðum og náttúruperlum sem bjóða upp á fjölbreytta útivist allt árið. Sterkt samfélag einkennir Álftanes þar sem þjónusta, skólar og íþróttaaðstaða eru í næsta nágrenni. Stutt og öruggt göngufæri er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús, sem gerir svæðið sérstaklega hentugt fyrir fjölskyldur á öllum aldri.

Viðhald síðastliðna ára skv. seljanda:
Húsið hefur fengið gott viðhald síðastliðin ár. 
Endurnýjaður Þakkantur og einnig kaldur geymsluskúr um 8fm. bætt við 2023.
Málun á þaki 2026, þak er í góðu ástandi.



*Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN. 

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/05/201636.500.000 kr.44.000.000 kr.131.5 m2334.600 kr.Já
12/12/201331.750.000 kr.40.000.000 kr.131.5 m2304.182 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smiðsbúð 1
Á einni hæð
Skoða eignina Smiðsbúð 1
Smiðsbúð 1
210 Garðabær
125 m2
Raðhús
312
679 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159,7 m2
Raðhús
43
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 27
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Maríugata 27
Maríugata 27
210 Garðabær
240,5 m2
Raðhús
614
761 þ.kr./m2
183.000.000 kr.
Skoða eignina Þrastarlundur 1
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
gabriel_vefur.jpg
Skoða eignina Þrastarlundur 1
Þrastarlundur 1
210 Garðabær
245 m2
Einbýlishús
635
935 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin