Öldugata 15 - Hafnarfirði STOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjart og fallegt 5 herbergja tvílyft einbýlishús á eftirsóttum stað við Öldugötu 15, Hafnarfirði.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og hefur verið breytt á smekklegan hátt. Húsið var klætt að utan með álklæðningu og skipt hefur verið um glugga og gler.
Eignin er skráð samtals 134,2 fm skv. HMS. - Fallegur og gróinn garður með verönd
- 4 svefnherbergi (hægt að bæta við fimmta)
- Baðherbergi og gestasalerni
- Gluggar og gler hafa verið endurnýjaðir og húsið klætt að utan
- Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu
Efri hæð:
Á aðalhæð er komið inn í flísalagt
andyrri með fataskáp.
Gangur / hol með máluðu viðargólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með gluggum á tvo vegu, málað viðargólf.
Eldhús er rúmgott með hvítri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, helluborð og vifta, tengi fyrir uppþvottavél, dúkur á gólfi.
Rúmgott
svefnherbergi með fataskápum og máluðu viðargólfi.
Flíslagt
salerni með innréttingu og flísum á gólfi, möguleiki á að bæta við sturtu.
Gengið er niður stiga á neðri hæð þar serm eru þrjú herbergi, baðherbergi og þvottahús.
Herbergi I er rúmgott með harðparketi á gólfi (var tvö herbergi áður, búið að sameina í eitt stórt).
Herbergi II með harðparketi á gólfi.
Herbergi III nýtt sem geymsla í dag, málað viðargólf.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, baðkar, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús með innréttingu og vinnuborði, flísar á gólfi.
Útgengt er í garðinn frá neðri hæð - fallegur og gróinn garður með góðu útisvæði.
Skv.seljanda:
Þakjárn og þakpappi endurnýjað 2012
Verönd/sólpallur settur bakvið og á hliðum 2012-2014
Gluggar og gler endurnýjaðir árið 2019 (nema tveir gluggar í kjallara)
Húsið klætt að utan með álklæðningu frá Áltak 2019
Sett var nýtt grindverk 2024
Miðstöðvarofnar á efri hæð endurnýjaðir 2013-2018
Dregið í nýtt rafmagn á efri hæð 2021 (nema í eldhúsi)
Dregið í nýtt rarfmagn á baðherbergi neðri hæðar og einu svefnherbergi 2014
Baðherbergi á neðri hæð tekið í gegn 2018
Þetta er einstaklega fallegt og bjart hús miðsvæðis í Hafnarfirði þar sem að skólar, verslanir og helsta þjónusta er í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.