M2 Fasteignasala kynnir í einkasölu - Glæsilegt parhús ásamt bílskúr við Kjarrmói 9 í Njarðvík, Reykjanesbæ.
Eignin Kjarrmói 9 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 223-2904, birt stærð 138.2 fm, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 223-2904 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
* Um er að ræða gott parhús á eftirsóttum og góðum stað í botngötu.
* Fasteignin er í góðu ástandi að utan sem innan. Upptekin loft í öllu húsinu.
* Góð skjólgóð verönd út af stofu bakatil er við húsið. Snjóbræðsla í innkeyrslu og göngustétt.
* Möguleiki að bæta við 3ja svefnherberginu.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri, flísar á gólfi, sérsmíðaður fataskápur.
Sjónvarpshol, flísar á gólfi, tengir herbergi og baðherbergi.
Stofa/borðstofa, flísar á gólfi, loft eru tekin upp. Sérsmíðaðar hillur og skrifborð.
Eldhús, flísar á gólfi, sérsmíðuð innrétting með granít borðplötu. Ofn í vinnuhæð, helluborð og vifta. Borðkrókur við glugga.
Hjónaherbergi, parket á gólfi, sérsmíðaður fataskápur
Barnaherbergi, parket á gólfi, sérsmíðaður fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum við baðkar og sturtu, innrétting við vask, granít borðplata og handklæðaofn.
Bílskúr, epoxy á gólfi, bílskúrshurð með opnara ásamt gönguhurð. Geymsluloft er yfir bílskúr.
Þvottaaðstaða er í bílskúr. Hvít innrétting með skolvask.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.