Fasteignaleitin
Skráð 23. mars 2026

Los Alcázares - Spánn

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
118 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
98.850.000 kr.
Fermetraverð
837.712 kr./m2
Fasteignanúmer
9976202_2
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Fasteignasalan TORG í samstarfi við NovusHabitat kynnir glæsilegar einbýlisvillur á eftirsóttum stað á Costa Cálida á Spáni.
Við veitum persónulega ráðgjöf og fylgjum kaupendum í gegnum allt ferlið, frá fyrstu skoðun til afhendingar, í samstarfi við trausta sérfræðinga á Spáni.

Um er að ræða glæsileg einbýlishús staðsett í Los Alcázares á Costa Cálida, vinsælu svæði við Mar Menor sem hefur notið vaxandi eftirspurnar meðal erlendra kaupenda. Svæðið er þekkt fyrir hlýtt og stöðugt loftslag, fallegar strendur og afslappað andrúmsloft sem hentar jafnt til frístundanota sem heilsárs búsetu. Í næsta nágrenni er öll helsta þjónusta, þar á meðal matvöruverslanir, veitingastaðir, kaffihús, skólar og heilsugæsla. Stutt er í strendur Mar Menor og einnig í fjölbreytta afþreyingu, svo sem golfvelli, íþróttasvæði og göngu- og hjólaleiðir. Murcia flugvöllur er í um 25–30 mínútna akstursfjarlægð og Alicante flugvöllur í um klukkustund.

Villurnar eru hannaðar með nútímalegu skipulagi þar sem áhersla er lögð á birtu, rými og góða tengingu við útisvæði. Húsin eru með þremur svefnherbergjum og tveimur til þremur baðherbergjum, opnu alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, einkagarði með einkasundlaug, rúmgóðum veröndum og sólbaðssvæðum ásamt þakverönd (solarium) þar sem njóta má fallegs útsýnis. Um er að ræða rúmgóðar og vel skipulagðar eignir sem henta bæði sem sumarhús og til heilsárs búsetu.

Villurnar eru afhentar fullbúnar með loftkælingu fyrir heitt og kalt loft, fullbúnu eldhúsi með tækjum, vönduðum baðherbergjum, einkasundlaug og fullfrágengnu útisvæði auk innbyggðra fataskápa.
Um er að ræða eignir sem eru tilbúnar til afhendingar eða útleigu við afhendingu. Verð er kr. 659.000 EUR.

Fasteignasalan TORG og NovusHabitat veita aðstoð við alla þætti kaupferlisins, þar á meðal tengingu við banka, lögfræðinga og þjónustuaðila á Spáni, og tryggja þannig einfalt og öruggt ferli fyrir kaupendur. Athygli er vakin á því að verð í íslenskum krónum er áætlað viðmið miðað við gengi á hverjum tíma. Endanleg viðskipti fara fram í evrum (EUR) og getur gengi haft áhrif á heildarkostnað.
Ferlið er einfalt; þú segir okkur hverju þú leitar að og við aðstoðum þig við að finna rétta eign. Við skipuleggjum skoðunarferðir og tökum að hluta þátt í kostnaði vegna þeirra, verði af kaupum.
Við kaup á nýbyggingum á Spáni leggst almennt 10% IVA (spænskur virðisaukaskattur) ofan á kaupverð. Auk þess má gera ráð fyrir um 3% viðbótarkostnaði vegna stimpilgjalda, lögfræðikostnaðar og annarra gjalda, þannig að heildarkostnaður getur numið um 13% ofan á kaupverð.
Við veitum aðstoð við allt kaupferlið á Spáni sem felur meðal annars í sér útgáfu NIE-númers, opnun bankareiknings og aðkomu lögfræðings. Algengt er að fjármögnun fáist hjá spænskum bönkum að hluta til, oft á bilinu 50–70% af kaupverði, háð mati á greiðslugetu.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, fasteignasali, í síma 863-8813 eða á netfangið elka@fstorg.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Krosseyrarvegur 14
Opið hús:16. júní kl 16:15-16:45
Krosseyrarvegur 14
220 Hafnarfjörður
107.7 m2
Einbýlishús
312
924 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Opið hús:15. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
114.6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1
Opið hús:15. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Vorbraut 1
Vorbraut 1
210 Garðabær
115 m2
Fjölbýlishús
312
1017 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 3 með bílskúr
Bílskúr
Selvogsbraut 3 með bílskúr
815 Þorlákshöfn
131.6 m2
Raðhús
312
622 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin