Fasteignasalan TORG kynnir :
Mjög vel skipulögð 3-4 herbergja neðri sér hæð í góðu tvíbýlishúsi ásamt rúmgóðum bílskúr sem búið er að breyta í studioíbúð, upplögð til útleigu. Fallegur afgirtur suðurgarður. Skv. skráningu Þjóðskrár er íbúðin 102,4 fm og bílskúrinn 33,5 fm. Samtals er eignin því skráð 135,9 fm. Eignin skiptist í forstofu, hol 2-3 svefnherbergi, stofu, eldhús, borðstofu, baðherbergi og þvottahús. Bílskúrinn skiptist í alrými með svefnaðstöðu, eldhús og baðherbergi. Eigin er laus til afhendingar við kaupsamning. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
NÁNARI LÝSING : .Forstofa : með fatahengi, hiti í gólfi, flísar á gólfi.
Hol : með parketi á gólfi.
Herbergi með skáp, parketi á gólfi. (gluggi opnast inn í forstofu).
Herbergi með skáp, parket á gólfi.
Stofa : rúmgóð og björt með parketi á gólfi.
Borðstofa / Herbergi : innaf stofu með tvöfaldri hurð, fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.
Sólstofa : er í framhaldi af eldhúsinu með flísum á gólfi og útgengi út á verönd til suðurs.
Baðherbergi : með sturtuklefa, handklæðaofn, innrétting við vask, hiti í gólfi, flísar á gólfi.
Þvottahús / geymsla : er í enda bílskúrs.
BÍLSKÚR : Bískúrnum hefur verið breytt í bjarta studio íbúð með sérinngangi og skiptist hún í gott alrými með svefnaðstöðu og snyrtilegu eldhúsi. Innst í skúrnum er gott baðherbergi með sturtu, innrétting við vask. Í enda bílskúrsins við bílastæði er þvottahús og geymsla sem tilheyra stærri íbúðinni.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is