Fasteignaleitin
Opið hús:22. nóv. kl 15:00-15:30
Skráð 18. nóv. 2026

Vesturtún 42

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
234.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
182.500.000 kr.
Fermetraverð
777.257 kr./m2
Fasteignamat
151.950.000 kr.
Brunabótamat
131.950.000 kr.
Mynd af Katla Hanna Steed
Katla Hanna Steed
Lögg. fasteignasali
Byggt 1997
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2230301
Landnúmer
173185
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Skipta þarf um gler í flestum gluggum hússins
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Háborg fasteignasala og Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali, kynna til sölu Vesturtún 42 – Álftanes, Garðabæ. 234,8 m² steinsteypt einbýlishús með innbyggðum tvöföldum bílskúr við Vesturtún 42 á Álftanesi í Garðabæ.
Rúmgott einbýlishús á einni hæð án þröskulda með frábæru skipulagi og einstaklega góðri staðsetningu.
Húsið er byggt árið 1997 og er einstaklega rúmgott og vel skipulagt. Allt íbúðarrýmið er á einni hæð og skiptist meðal annars í bjarta stofu og borðstofu, sérstaka sjónvarpsstofu og fjögur rúmgóð svefnherbergi.
Staðsetning eignarinnar er einn af hennar helstu kostum. Húsið stendur í grónu og rólegu íbúðahverfi þar sem skóli, leikskóli, íþróttaaðstaða og tómstundir fyrir börn eru í göngufæri án þess að þurfa að fara yfir götu.
Eigninni fylgir 748 m² gróin lóð með afgirtri verönd og hellulagðri innkeyrslu.
Helstu kostir eignarinnar:
  • Frábær staðsetning í grónu íbúðahverfi á Álftanesi
  • Skóli, leikskóli og íþróttaaðstaða í göngufæri án þess að fara yfir götu
  • Allt íbúðarrými á einni hæð
  • Einstaklega gott skipulag og rúmgóð herbergi
  • Fjögur svefnherbergi og sérstök sjónvarpsstofa
  • Innbyggður tvöfaldur bílskúr, 55,1 m²
  • Stórt geymsluloft yfir hluta hússins
  • Gróin 748 m² lóð með afgirtri verönd
Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali, í síma 822-1661 eða á netfanginu katla@haborg.is.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa:
Flísalögð forstofa. Inn af forstofu er gestasnyrting.
Gestasnyrting: Salerni, handlaug og spegill. Dökkar flísar á gólfi.
Hol og gangur: Rúmgott hol og gangur með parketi á gólfi sem tengja saman helstu vistarverur hússins.
Eldhús: Rúmgott eldhús með viðarinnréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og eyju. Helluborð, bakaraofn og uppþvottavél. Gluggi er við vask og dúkur á gólfi.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með stórum gluggum og útgengi á afgirta verönd. Parket og flísar á gólfum.
Sjónvarpsstofa: Sérstök rúmgóð sjónvarpsstofa með parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Fjögur sérlega rúmgóð svefnherbergi samkvæmt grunnteikningu. Parket á gólfum herbergja.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari, salerni og innréttingu með tveimur handlaugum.
Þvottahús: Rúmgott sérþvottahús með flísum á gólfi, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Inn af þvottahúsi er búr og útgengt er á lóð.
Bílskúr: Innbyggður tvöfaldur bílskúr, 55,1 m² samkvæmt skráningu, með tveimur innkeyrsluhurðum, gluggum, vinnuaðstöðu og góðu geymsluplássi. Í bílskúrnum er einnig rúmgott geymsluloft.
Geymsluloft: Stórt geymsluloft er yfir hluta hússins með aðgengi um loftlúgu með niðurfellanlegum stiga á svefnherbergisgangi. Einnig er geymsluloft í bílskúrnum. Geymsluloftin eru aðskilin og ekki er innangengt á milli þeirra. Geymsluloftin eru ekki skráð í fermetratölu eignarinnar.
Lóð og aðkoma:
Eignin stendur á gróinni lóð með grasflötum, trjágróðri og runnum. Við húsið er rúmgóð afgirt verönd.
Hellulögð innkeyrsla og bílastæði eru fyrir framan tvöfaldan bílskúr.
Staðsetning:
Vesturtún 42 er staðsett á Álftanesi í Garðabæ, þar sem stutt er í náttúru, sjóinn og fjölbreyttar göngu- og útivistarleiðir.
Ástand eignar:
Húsið er að mestu í upprunalegu ástandi frá byggingarári. 

Nánari upplýsingar um eignina veitir Katla Hanna Steed löggiltur fasteignasali í síma 822-1661 eða katla@haborg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi samkvæmt gildandi lögum. Þinglýsingargjöld af kaupsamningi, veðskuldabréfum og öðrum þinglýstum skjölum eftir atvikum. Lántökugjald lánastofnunar samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda og umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.




 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 35
Bílskúr
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vorbraut 35
Vorbraut 35
210 Garðabær
252,3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 33
Bílskúr
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vorbraut 33
Vorbraut 33
210 Garðabær
252,3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 31
Bílskúr
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vorbraut 31
Vorbraut 31
210 Garðabær
252,3 m2
Raðhús
624
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Skoða eignina Garðbraut 86
Bílskúr
Skoða eignina Garðbraut 86
Garðbraut 86
250 Garður
228,6 m2
Einbýlishús
624
Fasteignamat 84.700.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin