Fasteignaleitin
Skráð 15. maí 2026

Hvannakur 6

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
247 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
275.000.000 kr.
Fermetraverð
1.113.360 kr./m2
Fasteignamat
263.550.000 kr.
Brunabótamat
143.100.000 kr.
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2289074
Landnúmer
187283
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Stýrikerfi fyrir gólfhita uppfærður. Allar dælur fyrir vatn og hita uppfært
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Skipt um gluggalæsingar og slúttjárn í öllum gluggum. Nýr gluggi- og rennihurðarunit út á pall - sérsmíðað frá Velfac með tvöfaldri rennihurð. Aðrir gluggar upprunalegir
Þak
Upprunalegt, en búið að skipta út flasningum á þaki, það var gert árið 2012
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Kuldabrú myndast á einum stað á svefnherbergis ganginum og það mælist raki í horninu við einn vegg inn í stofu. Tvær skápahurðir í eldhúsi, þarfnast endurnýjunar og það er brot í gler hurðinni inn í þvottahúsið við kattarlúguna.
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Vel skipulagt og vel staðsett 247,0 fm. einbýlishús á einni hæð við Hvannakur 6, 210 Garðabæ með frábært úti-svæði, verönd með steyptum skjólveggjum og heitum potti. Húsið stendur á skjólsælum stað.

Í húsinu er gólfhiti, gólfsíðir gluggar, vandaðar innréttingar hannaðar af Hallgrími Friðgeirssyni og hátt til lofts. Hvannakur 6 er teiknað að af ARKITEÓ, sjá hér link frá þeim um húsið https://www.arkiteo.is/hvannakur-6

Samkvæmt HMS, kemur fram í fasteignayfirliti að húsið sé skráð 247,0 fm, þar af er innbyggður bílskúr 38,4 fm.

Í húsinu eru fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu með útgengi út á verönd. Sjónvarpsstofa, gangur og anddyri með aðgengi inn mjög rúmgóðan bílskúr.

Smelltu á linkinn til að skoða húsið í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Nánari lýsing:

Forstofan er björt og rúmgóð með gott skápapláss, flísar á gólfi. Hægt er að loka forstofu að með viðar rennihurðum. Gangur með sömu flísum tekur þar við, annars vegar inn í alrými með eldhús, borðstofu og stofu. Bjart og rúmgott alrými með hátt til lofts og gólfsíðum gluggum að hluta til og stóra opnanlega vængjahurð út á glæsilega verönd með heitum potti, steptum skjólveggjum og markísu. Harðparket á gólfi. Eldhúsinnrétting er hvít með Quartz stein á borðum, innbyggðan kælir með frystir, ofn og combi ofn eru í vinnuhæð. Undirlímdur vaskur og innbyggð uppþvottavél. Mikið og gott vinnu- og skúffu pláss. Eyjan er með sama Quartz stein á borði, gashelluborð og gott skúffu pláss þar undir, áður var fast borðplata þar við, nýlega tekin niður. Í miðju alrými er gas arinn sem skilur að hluta til alrými við sjónvarpsstofu. Fallegt birta er í öllu húsinu, flottir gluggar hátt með fram flísalögðum svefnherbergisgangi setja svip sinn á eignina í sambland við stóran sjónsteypu vegg og gólfsíða glugga. Herbergin eru fjögur, öll mjög rúmgóð. Í hjónaherberginu er harðparket á gólfi og fataskápar með viðar rennihurðum. Þar við hlið er baðherbergi með sömu flísum og eru á ganginum, en hvítum flísum á veggjum. Baðkar og sér sturta með sturtugleri, innbyggð blöndunartæki, handklæðaofn og upphengt salerni. Stór og flott innrétting með Quartz stein á borði, undirlímdan vask og gott vinnu- og skúffu pláss ásamt baðskáp þar við hlið. Stór spegill með óbeina lýsingu bæði upp og niður. Sér þvottahús er þar við hlið með sömu flísum á gólfi, hvíta innréttingu með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt góðu borðplássi með skolvaski í, hvítur speglaskápur þar á móti. Frá þvottahúsinu er útgengi út á lóð, gler hurð með kattarlúgu í, auðvelt að endurnýja ef þess með þarf. Hin herbergin þrjú eru öll með fataskáp og harðparket á gólfi. Baðherbergi II er á ganginum á bakvið sjónvarpsstofu, það var endurnýjað árið 2024, gráar flísar á gólfi og upp meðfram sturtunni, sem er með innbyggðum blöndunartækjum og sturtugleri. Innrétting er með Quartz stein á borðum, undirlímdan vask og skúffur þar undir, fyrir ofan er spegla glerskápur með gott geymslupláss. Handklæðaofn og upphengt salerni. Frá forstofunni er hurð inn í bílskúrinn, hann er mjög rúmgóður með flísum á gólfi, rafdrifna hurð og glugga sem veita birtu inn, búið er að hólfa að hluta til geymslu í öðrum enda þess og sníða gott og snyrtilegt geymslupláss með fram veggjum í loftinu. 

Hellulagt og með hita í er fyrir framan innganginn og að veröndinni. Þá er einnig hiti í stimpilsteypta planinu fyrir framan bílskúrinn. Steyptir skjólveggir umlykja veröndina, þar er heitur pottur og fallegur gróður meðfram skjólveggjunum að utanverðu. Á bak við húsið er hellulagt meðfram öllu húsinu og að lóðarmörkum er grasblettur sem er í öðrum enda þess gróðursettur á huggulegan hátt. 

Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6056 / gulli@remax.is og  Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2006
38.4 m2
Fasteignanúmer
2289074
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.250.000 kr.

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stekkjarholt 4
Bílskúr
Skoða eignina Stekkjarholt 4
Stekkjarholt 4
355 Ólafsvík
178 m2
Einbýlishús
513
359 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Dynskógar 14
Skoða eignina Dynskógar 14
Dynskógar 14
810 Hveragerði
151.7 m2
Einbýlishús
423
521 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Bogaslóð 17
Bílskúr
Skoða eignina Bogaslóð 17
Bogaslóð 17
780 Höfn í Hornafirði
104.9 m2
Einbýlishús
312
524 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1 (302)
v1 302.png
Skoða eignina Vorbraut 1 (302)
Vorbraut 1 (302)
210 Garðabær
136.3 m2
Fjölbýlishús
322
1173 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin