Fasteignaleitin
Skráð 15. nóv. 2024

Straumhella 6H

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
128.5 m2
Verð
53.200.000 kr.
Fermetraverð
414.008 kr./m2
Fasteignamat
44.000.000 kr.
Brunabótamat
43.400.000 kr.
Mynd af Magnús Kristinsson
Magnús Kristinsson
löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2525528
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
08
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Til sölu lager- og iðnaðarhúsnæði að Straumhellu 6H, 221 Hafnarfirði, alls 128,5 fm.
Selst með ótímabundnum leigusamningi. Leigjandi er með forkaupsrétt.

Innkeyrslubil í nýbyggðu fjöleignahúsi. Ein innkeyrsludyr, 4 m. há og 4 m. breið.
Gólfflötur á jarðhæð er 88,4 m² og milliloft er 40,1 m². Steyptar tröppur eru upp á milliloftið. 
Húsnæðið afhendist með kaffistofu og snyrtingu. Að öðru leyti óinnréttað. Innst í bilinu eru dyr inn á sameignargang, flóttaleið með útgengi á suðurhlið hússins.
Lofthæð er um 5,5 m. við vegg og um 6 m. þar sem hæst er.
Búið er að malbika plan umhverfis húsið. Olíu/fitu gildra er til staðar við húsið. 
VSK kvöð sem kaupandi yfirtekur við kaupsamning.

Það helsta úr skilalýsingu:
Burðarvirki: Sökklar, útveggir, berandi innveggir, eru úr forsteyptum einingum. Milliplötur eru úr filigran plötum með ásteypulagi.
Þakvirki: Þakið er borið upp með límtrésbitum og yleiningum frá Límtré Vírnet.
Klæðning: Húsið er byggt úr forsteyptum samlokueiningum með 70 mm. forsteyptri veðurkápu sem er í ljósum lit.
Gluggar og útihurðir: Gluggar og útihurðir eru verksmiðjuframl. úr timbur og áli með tvöföldu K-gleri. Innkeyrsluhurðir eru Ál-panel hurðar. Söluaðili er BM-Vallá.
Loftræsting: Húsið er loftað með náttúrulegri loftræstingu opnun glugga og hurða. Í aflokuðum gluggalausum rýmum og kaffistofum verður vélræn loftræsting þar sem við á.
Handrið á stiga og milliloft: Handrið eru úr málmi. Handrið á stiga/tröppum er 110 cm. með samfelldan handlista í 90 cm úr 50 mm. stálröri eða sambærilegt. Fallvörn af lagerrýmum er handriði í 110 cm. hæð.
Innanhúsfrágangur: Allir léttir veggir eru gifsveggir úr blikkgrindum, klæddir með gifsplötum.
Lagnir: Húsið er upphitað með hefðbundinni ofnalögn ofnum og með hitablásurum í stærri bilum. Neysluvatns og þrifalagnir eru lagðar að tengistöðum. Varmaskiptir er notaður fyrir heitt neysluvatn og er hann staðsettur við inntak í húsið. Hitastig er hámark 60°C til 65°C.
Rafmagn: Töflur verða frágengnar bæði í lagnarými og sérrýmum. Ljós verða frágengin ásamt rofum og tenglum. Tenglarenna um 1 m. verður í rýmunum sem kaupendur geta bætt við eftir þörfum.
Málning: Léttir veggir og milliloft verður málað í ljósum lit. Aðrir veggir og gólf verða með steypu áferð.
Gólf: Gólf verða vélslípuð.
Frágangur wc og kaffistofu: Á salerni verður salernisskál frágengin ásamt handlaug. Kaffistofa verður með skápum, borðplötu og skolvaski.
Snjóbræðsla: Snjóbræðsla er i gangstéttum fyrir framan hús og að auki í bílastæðum fyrir hreyfihamlaða. Notast er við frárennsli ofnakerfis við snjóbræðslu.
Sorp: Gert er ráð fyir sorpgerðum við húsið vestan og austan megin. Skolkranar eru stasettir á útvegg sem næst lagnarými.
Lóðarfrágangur: Lóð verður frágengin, bilastæði og aðkoma malbikuð.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, í síma 861 0511, tölvupóstur magnus@jofur.is.

Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila af fasteignamati eða samkvæmt annarri upphæð sem sýslumaður ákveður hverju sinni. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala og er kostnaður við það kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 77.500 ,- 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drekavellir 24B
DJI_0340.JPG
Skoða eignina Drekavellir 24B
Drekavellir 24B
221 Hafnarfjörður
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Til leigu
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
665 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Skoða eignina Suðurlandsbraut 18
Suðurlandsbraut 18
108 Reykjavík
300 m2
Atvinnuhúsn.
59
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin