Fasteignaleitin
Skráð 19. sept. 2024
Deila eign
Deila

Kambsvegur 30

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
152.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
853.482 kr./m2
Fasteignamat
88.700.000 kr.
Brunabótamat
67.730.000 kr.
Mynd af Ólafur H. Guðgeirsson
Ólafur H. Guðgeirsson
löggiltur fasteignasali
Byggt 1967
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2020014
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjaðar 2023 og fyrr.
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Nýtt 2023 og 2024
Þak
Endurnýjað fyrir 8 árum að sögn fyrr eiganda
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir frá stofu, nýjar flísar
Lóð
50%
Upphitun
Ofnar, endurnýjaðir fyrir tíð núverandi eigenda
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Einstaklega falleg 152,2 fermetra efri hæð með sérinngangi í tvíbýli. Íbúðin sjálf er 124,2 fermetrar með aukinni lofthæð, og hefur verið gagngert endurnýjuð á síðustu árum með nýju gólfefni, endurnýjuðum raflögnum með nýjum rofum, dimmerum og innstungum, og nýlegu eldhúsi með nýjum tækjum. Inn af eldhúsi er þvottahús með nýrri innréttingu og þar innaf er geymsla. Svefnherbergin eru þrjú, stofan er rúmgóð og björt og tengd við borðstofu og eldhús sem eru í einu rúmgóðu rými. Stórt bílastæði framan við 28 fermetra bílskúr sem var endurnýjaður að innan fyrir tveimur árum, múraður og sett ný hurð með opnara. Húsið hefur verið gagngert endurnýjað að utan á síðustu tveimur árum, allir gluggar endurnýjaðir og húsið endurmúrað og málað. Skipt var um þak fyrir c.a. 8 árum. Frábær staðsetning, rétt við Laugardalinn. Eign í sérflokki.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða olafur@eignamidlun.is sem einnig sýnir eignina.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT


Húsið stendur á rólegum stað á horni Kambsvegar og Hólsvegar, en keyrt er inn á bílastæði hússins frá Hólsvegi. Sér inngangur er að íbúðinni á jarðhæð, en komið er inn í endurnýjaðan stigagang þar sem er forstofa og stigi upp á hæðina. Flísar eru í forstofunni og mögulegt að hafa þar fatahengi, en stiginn er með nýju teppi og glerhandriðum. Stiginn liggur upp á rúmgóðan stigapall þar sem stór gluggi veitir mikilli birtu inn í rýmið. Til hægri á stigapalli er hurð með gleri inn í íbúðina.

Íbúðin hefur verið endurnýjuð með afar smekklegum hætti. Aukin lofthæð er í íbúðinni, sem gefur tilfinningu fyrir miklu rými. Á öllum gólfum er sérlega fallegt viðarparket með löngum breiðum borðum.

Þegar komið er inn af stigapalli inn í íbúðina er hol þar sem eru svefnherbergi á sér gangi til vinstri. Stofan er beint framundan og eldhús/borðstofa til hægri, en opið er á milli þessara rýma.

Borðstofurýmið er rúmgott og bjart, enda hafa eldhús og borðstofa verið sameinuð í eitt opið rými og glæsileg eldhúsinnrétting sett á tvo veggi. Vönduð steinplata er á eldhúsbekknum og undirlímdur vaskur, nýr bakaraofn og nýtt helluborð. Tveir stórir gluggar eru á sitt hvorum vegg, sem gerir borstofuna mjög bjarta og vistlega. Til hægri þegar komið er inn í eldhúsrýmið eru dyr að rúmgóðu þvottahúsi með nýjum innréttingum og með geymslu innaf, nýr gólfdúkur á gólfum í þvottahúsi og geymslu.
Opið er milli stofu og borðstofu, en stofan er með stórum björtum gluggum í tvær áttir, auk þess sem birta flæðir frá borðstofu að stofu. Vegna halla á þaki hússins er meiri lofthæð í stofu. Stórar svalir með nýjum flísum á gólfi eru út frá stofu næst borðstofu, nægt pláss fyrir grill og stóla.

Svefnherbergin eru þrjú, tvö á sér gangi þar sem einnig er baðherbergi. Herbergin eru rúmgóð og björt og á ganginum er stór vandaður fataskápur. Baðherbergi var endurnýjað af fyrri eigendum en núverandi eigendur hafa sett nýjan vask með skáp undir og nýjan speglaskáp ofan við vaskinn. Einnig ný blöndunartæki við bað og ný innfelld ljós í loft.

Eignin er sérlega falleg og þær breytingar sem gerðar hafa verið koma vel út. Allar raflagnir eru nýjar og tenglar og rofar hafa verið endurnýjaðir með nýjum dimmerum. Samhliða endurnýjun raflagna voru settar mjög smekklegar kastarabrautir frá S.Guðjónsson í stofu og eldhús. Sér inngangur er í eignina, sér hitamælir, og engin sameign. Ekki er rekið húsfélag í húsinu en mjög gott samstarf hefur verið um endurbætur hússins. Bílskúrinn er 28 fermetra, ný einangraður og múraður að innan, með vatni og nýjum raflögnum. Bílhleðsla fylgir. Nýlegur þakdúkur er á skúrnum.

Að utan hafa gagngerar breytingar verið gerðar á húsinu á síðustu tveimur árum. Allir gluggar í húsinu hafa verið endurnýjaðir ásamt endurnýjun á múrkápu og málun. Húsið lítur afar vel út.

Sérlega björt og falleg eign, mikið endurnýjuð. Sjón er sögu ríkari.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.

Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 |www.eignamidlun.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/02/202264.150.000 kr.96.000.000 kr.152.2 m2630.749 kr.
22/06/201851.500.000 kr.60.000.000 kr.152.2 m2394.218 kr.
18/11/201330.350.000 kr.40.900.000 kr.152.2 m2268.725 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 1967
28 m2
Fasteignanúmer
2020014
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.830.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Súðarvogur 9b
Bílskúr
Bílastæði
Opið hús:21. sept. kl 13:00-13:30
Skoða eignina Súðarvogur 9b
Súðarvogur 9b
104 Reykjavík
160 m2
Fjölbýlishús
312
819 þ.kr./m2
131.000.000 kr.
Skoða eignina Trilluvogur 7
Bílastæði
Skoða eignina Trilluvogur 7
Trilluvogur 7
104 Reykjavík
180.7 m2
Raðhús
734
719 þ.kr./m2
130.000.000 kr.
Skoða eignina Sólvallagata 11
Skoða eignina Sólvallagata 11
Sólvallagata 11
101 Reykjavík
157.3 m2
Fjölbýlishús
522
762 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Kambasel 23
Skoða eignina Kambasel 23
Kambasel 23
109 Reykjavík
179.5 m2
Raðhús
614
668 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin