Fasteignaleitin
Skráð 6. mars 2026

Vogur

Jörð/LóðVesturland/Búðardalur-371
1,357.2 m2
Verð
Tilboð
Brunabótamat
736.450.000 kr.
Friðrik Þ Stefánsson
lögmaður og lögg.fs.
https://miklaborg.isEignalisti
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2117875
Húsgerð
Jörð/Lóð
Inngangur
Margir inngangar

Miklaborg kynnir: Jörðina VOG á Fellströnd. Mikill húsakostur er á jörðinni sem nýttur hefur verið í ferðaþjónustu. 45 HA ræktuð tún eru á Vogi. Jörðin hentar mjög vel til frekari uppbyggingar ferðaþjónustu vegna staðsetningar á vestfjarðahringnum, náttúrufegurðar og útsýnis út á Breiðafjörð. Vogur hentar vel fyrir félagasamtök eða einstaklinga sem hyggja á uppbyggingu orlofshúsa eða sumarhúsabyggð með stórum lóðum fyrir einstaklinga.

NÁNARI LÝSING Jörðin Vogur er öll gróin milli fjalls og fjöru og svo langt sem hún nær inn að Fábeinsvötnum. Landamerki jarðarinnar að austan fylgja Heyá inn í Fábeinsvötn en að vestan er dregin lína niður í sjó er liggur skammt vestan gróinna túna jarðarinnar. Ræktuð tún eru um 45 HA. og nokkuð hefur verið gróðursett af trjágróðri. Jörðin er undir Vígholtsstaðafjalli og er hluti fjallsins og heiðalanda innan landamerkja jarðarinnar. Rjúpnalendur eru á fjallinu. Húsakostur á Vogi er samtals um 1.350 m2 sem hefur að sögn eiganda verið mikið endurbyggður og endurnýjaður:: 165,fm.uppgert einbýlishús er á einni hæð með stórum sólpalli mót suðri og vestri. Þar eru 6 svefnherbergi, stór stofa, eldhúd 2 snyrtingar og þvottahús. Endurbyggð hlaða, ásamt fjósi og kálfahúsi hýsa í dag hótel- og gistiaðstöðu með stórum matsal og fullkomnu veislueldhúsi. Hótelið er um 765 fm á 2 hæðum. Á neðri hæð er mat- og samkomusalur sem tekur 80 manns í sæti, bar og fullkomið veislueldhús með aðstöðu fyrir stóra kæla og frysta. Á efri hæð eru 10 lúxus gistiherbergi, hvert þeirra með baðherbergi og skiptast þau í 4 superior svítur og 6 standard svítur. Gamla fjósið er rúml. 296 fm. og kálfahúsið er rúml. 130 fm. Samtals hýsa þau 18 2-4ra manna herber4gi sem öll eru með sér baðherbergi. Í kjallara er gufubað ásamt heitum potti þar fyrir utan. Undir húsunuim er mikið ónýtt rými ( gamla haughúsið ) sem býður upp enn frekari möguleika.

Jörðin Vogur er á einstaklega fallegurm útsýnisstað og vel vel heppnuð endurbygging húsa á jörðinni býður upp á mikla möguleika til frekari uppbyggingar ferðamennsku vegna staðsetningar á hinum nýja vestfjarðahring, náttúrufegurðar og útsýnis yfir Breiðafjörð. Ekki síður hentar hún vel fyrir félagasamtök eða einstaklinga sem hyggja á uppbyggingu orlofshúsa fyrir félagsmenn eða sumarhúsabyggð með stórum lóðum fyrir einstaklinga.

MYNDBAND frá VOGI: https://www.youtube.com/watch?v=v4id_4eOWuc&feature=youtu.be

Allar nánari upplýsingar gefur Friðrik Þ. Stefánsson lögm. og lgfs. í s. 616 1313 eða fridrik@miklaborg

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (84)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hléskógar 6
Skoða eignina Hléskógar 6
Hléskógar 6
301 Akranes
Jörð/Lóð
1.900.000 kr.
Skoða eignina Víðigerði 0
Fjárfestingartækifæri
Skoða eignina Víðigerði 0
Víðigerði 0
320 Reykholt í Borgarfirði
11,729.8 m2
Jörð/Lóð
424
19 þ.kr./m2
220.000.000 kr.
Skoða eignina Kílhraunsvegur 3
Kílhraunsvegur 3
804 Selfoss
83 m2
Jörð/Lóð
117 þ.kr./m2
9.700.000 kr.
Skoða eignina Hádegisskarð 26
Hádegisskarð 26
221 Hafnarfjörður
375.7 m2
Jörð/Lóð
4
279 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin