Fasteignaleitin
Opið hús:27. júní kl 13:00-15:00
Skráð 25. júní 2026

Hafnarbraut 10 -304

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
63.9 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.990.000 kr.
Fermetraverð
1.048.357 kr./m2
Fasteignamat
5.910.000 kr.
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2542524
Landnúmer
114519
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
Ál/Tré
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
6,0 m2
Upphitun
ofnakerfi / gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Berglind Hólm lgfs. og Þorsteinn Gíslason lgfs. kynna:  Glæsileg ný 2ja herbergja íbúð á 3.hæð, íb.0304 í vönduðu lyftuhúsi á Kársnesinu í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu með góðum fataskápum, gott alrými með eldhúsi, setustofu og borðstofu,, baðherbergi með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt sturtu beint á gólf, gott svefnherbergi með fataskápum og geymslu. Íbúðin er skráð 63,9 m2 og þar af er 9,6 m2 geymsla. íbúðin skilast með uppþvottavél, ísskáp, bakaraofni og spanhelluborði. Íbúðir eru seldar fullbúnar án gólfefna nema á votrýmum sem er flísalögð. Í íbúðum er sérstætt loftútskiptikerfi sem tryggir betra loft innan íbúða. 
Myndir í auglýsingu eru af sambærilegri íbúð í húsinu og því bara til viðmiðunar af útliti innréttinga og rýma. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða steini@remax.is

Hafnarbraut 10
er fjölbýlishús, 4 hæðir ásamt hálf niðurgröfnum kjallara með fullniðurgrafinni bílgeymslu fyrir utan hús að stórum hluta. Aðalinngangar að byggingunni eru tveir ásamt jafn mörgum stiga- og lyftuhúsum sem hvert um sig er búið sjúkraflutningalyftu. Einnig eru inngangar frá dvalarsvæði ofan á bílgeymsluþaki.

Innréttingar: Sérlega vandaðar innréttingar með miklu og góðu skápaplássi og skúffum með ljúflokun frá VOKE-III.

Tæki í eldhús: Öll tæki í eldhúsi eru fra Siemens, frá Smith og Norland. Tæki sem fylgja með í kaupum eru bakaraofn, uppþvottavél, ísskápur og spanhelluborð með innbyggðri viftu, þó eru einstaka íbúðir með háf fyrir ofan eldavél.

Blöndunartæki á baðherbergjum, eldhúsi og í þvottaherbergjum: Blöndunartæki fyrir handlaugar eru einnarhandar tæki frá Grohe.

Hitakerfi: Í húsinu er hefðbundið ofnakerfi nema á baðherbergjum er gólfhiti.

- Aðkoma að íbúðum er um sameign í beinni tengingu við stiga- og lyftuhús. Í kjallara eru sérgeymslur ásamt reiðhjóla- og vagnageymslum og tæknirýmum. Einnig er þaðan beint aðgengi inn í bílgeymslu. Hluti sérgeymsla er með aðgengi frá bílgeymslunni, í beinni tengingu við bílastæði viðkomandi íbúðar. Í byggingunni eru samtals 48 íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Litur byggingarinnar er ljós með einstöka uppbroti í öðrum litum . Gluggar eru gylltir að utan og dökkir að innan.
- Byggingin er staðsteypt með járnbentri steinsteypu. Útveggir og brunaveggir milli íbúða eru 200 mm þykkir. Útveggir eru einangraðir að utan með 100 mm steinullareinangrun. Einangrun er klædd af með álklæðningarkerfi sem veðurkápu. Útveggir kjallara eru einangraðir og múraðir að innan með 100 mm plasteinangrun.
- Allar lofta- og veggklæðningar innanhúss eru í brunaflokki 1. Léttir veggir innan íbúða eru úr álstoðum og klæddir með fermacell. Útveggir, innveggir og loft eru sandspörtluð og máluð. Milliveggir í geymslum eru úr álstoðum og klæddir með fermacell.
- Gluggar eru ál/tré með einangrunargleri og brunagleri þar sem þess gerist þörf. Gólfsíðir gluggar hafa hert- /öryggisgler upp í a.m.k. 60 cm hæð. Öll opnanleg fög í gluggum eru með barnalæsingu.
Frágangur innanhúss:
Gólf:
 Íbúðir eru án gólfefna ef frá eru talin gólf í baðherbergjum og þvottahúsi sem verða flísalögð. Gólf án gólfefna verða afrétt og tilbúin til lagningar á endanlegu gólfefni.
Veggir.: Allir útveggir og berandi innveggir eru sandspartslaðir. Léttir innveggir eru hefðbundnir Fermacell plötuveggir sparslaðir og málaðir. Veggir á baðherbergjum með vatnsáraun (handlaug, bað og sturta) eru flísalagðir upp í loft.. Aðrir veggir votrýma í íbúðum eru málaðir með málningu með myglu og sveppavörn í háu gljástigi.
Skápar í herbergjum: Skápar eru breytilegir í stærð, þar sem hæð skápa fer eftir hæðum. Hæð skápa verður frá 232-292 cm. Leitast verður við að hafa hengi, hillur og/eða skúffur í hverri samsettri skápaeiningu. Ljúflokunarbúnaður verður á öllum hurðum og skúffum. Að innan verða skápar hvítir en ljóstóna að utan þar sem hliðar og hillur skápa eru úr viðarlíki. Skápar eru í forstofu, þvottahúsi, hjónaherbergi og barnaherbergjum.
Eldhús: Innrétting í eldhúsi er samkvæmt teikningu arkitekts en verður teiknuð sérstaklega upp fyrir framleiðslu. Allir skápar verða hvítir Að innan verða skápar hvítir en ljóstóna að utan þar sem hliðar og hillur skápa eru úr viðarlíki. Borðplata er harðplast. Ljúflokanir verða á öllum hurðum og skúffum innréttinga. Allar innréttingar verða keyptar af VokéII sem er viðurkenndur framleiðandi með langa viðskiptasögu. Með eldhúsinnréttingu fylgir bakaraofn, uppþvottavél, ísskápur og spanhelluborð með innbyggðri viftu, þó eru einstaka íbúðir búnar háf með kolasíu. Tækin eru af gerðinni Siemnes frá Smith og Norland. Blöndunartæki í eldhúsi eru svokölluð „einnarhandar“ tæki af vandaðri gerð Grohe.
Hurði: Innihurðir eru spautulakkaðar hvítar. Handföng og lamir eru með svartri stál áferð. Hurðir úr íbúðum út í sameign eru eldvarnarhurðir (EI-30CS) Hurðir á göngum og sameign í kjallara þar sem krafist er A-60 brunavarnar verða hurðir úr stáli og lakkaðar í viðeigandi lit.
Bað- og þvottaherbergi: Allar salernisskálar eru upphengdar og salerniskassi innbyggður í vegg. Glerskilrúm aðskilur sturtugólf sem er einhalla og aðskilið frá baðgólfi með lítilli brún. Blöndunartæki fyrir handlaugar eru svo kölluð „einnarhandar“ tæki. Í baðherbergi er sturta. Hitastillir er á blöndunartækjum. Þvottaherbergi eru með upphengdu borði. Skolvaskur og „einnarhandar“ blöndunartæki eru í borði. Gólfniðurföll eru í öllum bað- og þvottaherbergjum.
Loftræsikerfi: Í allar íbúðir er vélrænt inn og útsog úr alrými, baðherbergjum og þvottarýmum. Samstæða fyrir hverja íbúð verður staðsett í lofti svala. Vélrænt útsog er frá geymslum, lokuðum rýmum í kjallara og lokuðum gluggalausum rýmum í íbúðum, s.s. baðherbergjum og úr eldhúsum.
Bílageymsla: Flestum íbúðum fylgir eitt bílastæði í sameiginlegri bílgeymslu. Bílastæðin eru sérmerkt viðkomandi eignarhluta. Veggsúlur verða málaðar. Gólf er steypt og slípað án frekari meðhöndlunar. Bílageymslan er ekki upphituð en frostfrí. Bílageymslan er búin samtengdum reykskynjurum og vatnsúðakerfi. Bílgeymsluhurð eru með fjarstýrðum opnara. Gert verður ráð fyrir rafstreng í bílageymslu þar sem hægt verður að tengja inná hleðslustöð fyrir rafbíla.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 eða steini@remax.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureiturinn D1 311
Orkureiturinn D1 311
108 Reykjavík
108.4 m2
Fjölbýlishús
322
1032 þ.kr./m2
111.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D2 603
Orkureiturinn D2 603
108 Reykjavík
67.5 m2
Fjölbýlishús
222
1184 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Opið hús:02. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Sæbólsbraut 27
200 Kópavogur
197.1 m2
Raðhús
624
811 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7
Bílastæði
Skoða eignina Eirhöfði 7
Eirhöfði 7
110 Reykjavík
130.4 m2
Fjölbýlishús
423
1027 þ.kr./m2
133.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin