Fasteignaleitin
Opið hús:05. nóv. kl 17:00-17:45
Skráð 31. okt. 2026

Jörfalind 10

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
157.6 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
159.000.000 kr.
Fermetraverð
1.008.883 kr./m2
Brunabótamat
75.050.000 kr.
Byggt 1997
Pallur
Heitur pottur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
22270761
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir eignina Jörfalind 10.  Um er að ræða mikið endurnýjað, fallegt og vel staðsett endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 157,6 fm. þar af er íbúðarhluti 136,1 fm. og bílskúr 21,5 fm. Húsið er vel staðsett á rólegum og eftirsóttum stað í Lindahverfinu með fallegu útsýni. Hátt til lofts og vítt til veggja.  Stórt og mikið opið alrými á tveimur pöllum sem rúmar eldhús, borðstofu og stofur.  Mjög falleg nýleg eldhúsinnrétting með eyju.  Hjónaherbergi og 2 barnaherbergi.  Pallur og pottur. Glæsilegt útsýni.   

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í flísalagða opna forstofu með góðum fataskáp sem staðsettur er innan við forstofu, gólfhiti.
Stofa/borðstofa: Í alrými á tveimur pöllum með eldhúsi er björt og rúmgóð stofa/borðstofa með parketi á gólfi, aukin lofthæð. Úr stofu er útgengt á suðvestur sólpall.
Eldhús: Í alrými á efri palli er rúmgott glæsilegt nýlegt eldhús með eyju.  Steinn á borðum. innrétting frá GKS. 
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með góðum skápum, útgengi út á sólpall. 
Svefnherbergi 2: Inn af forstofu er gott parketlagt herbergi með góðum skápum. 
Svefnherbergi 3: Inn af forstofu er gott parketlagt herbergi.   
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með góðri innréttingu, sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, gólfhiti, flísalagt.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús með innréttingu, skolvaskur, vinnuborð, flísar milli skápa.
Bílskúr: Innbyggður 21,5 fm. bílskúr, heitt og kalt vatn, rafdrifin bílskúrshurðaopnari, geymsluloft, ný bílskúrhurð, málað gólf. 

Húsið: Er steypt, aukin lofthæð er í öllum rýmum nema baðherbergi og þvottahúsi. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. 
Lóð: Fullfrágengin falleg lóð. Framan við húsið er hellulögð stétt/verönd og bílaplan með hlöðnum blómabeðum, upphitað bílaplan og stétt að hluta.  Á baklóð er  ca. 45 fm. suðvestur sólpallur (timbur og hellulagður), heitur pottur, frábært útsýni í suðvestur.
Hér er um að ræða fallega eign sem hlotið hefur gott viðhald. Einstaklega vel staðsetta með fallegu útsýni. Stutt í alla þjónustu, Lindarskóli í hverfinu, heilsugæsla að ógleymdri Smáralindinni með allri þeirri þjónustu sem þar er boðið upp á. Stutt út á stofnbrautir til allra átta.

Núverandi eigendur keyptu húsið 2021 og fóru í eftirfarandi breytingar : 
Ný eldhúsinnrétting (og stigi færður) - 2022
Nýtt parket (harðparket) - 2022
Ný innrétting á baðherbergi 2022
Hleðslustöð sett upp 2022
Þak málað og lagfært (ryð fjarlægt) - sumar 2024. Þak er upprunalegt. 
Hús málað að utan sumar 2025
Gluggar lakkaðir að utan sumar 2025 
 
Nánari upplýsingar veita . 
Börkur Hrafnsson Lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 8924944, tölvupóstur borkur@fastborg.is
Úlfar Þór Davíðsson lögg. fasteignasali, í síma 7889030, tölvupóstur  ulfar@fastborg.is

Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mosagata 7
Hleðslustöð
Opið hús:07. nóv. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Mosagata 7
Mosagata 7
210 Garðabær
142,4 m2
Fjölbýlishús
413
737 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hleðslustöð
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
78,5 m2
Fjölbýlishús
212
929 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarás 13
Opið hús:04. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Bjarkarás 13
Bjarkarás 13
210 Garðabær
136,7 m2
Fjölbýlishús
312
826 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 7D 103
Hleðslustöð
Skoða eignina Eskiás 7D 103
Eskiás 7D 103
210 Garðabær
80,3 m2
Fjölbýlishús
413
983 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin