Fasteignaleitin
Skráð 24. júlí 2026

Víðihlíð 1

EinbýlishúsNorðurland/Sauðárkrókur-550
129.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
538.521 kr./m2
Fasteignamat
65.000.000 kr.
Brunabótamat
70.700.000 kr.
SB
Sunna Björk Atladóttir
Byggt 1975
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2132426
Landnúmer
143851
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Síðan húsið var byggt
Raflagnir
Síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
Síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
Síðan húsið var byggt
Þak
Síðan húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalahurð út í garð að austan
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignin Víðihlíð 1, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum. 
Steypt, vel skipulagt, fimm herbergja einbýlishús á einni hæð alls 129,8 fm., byggt árið 1975.
Leigulóð hússins er 1011 fm.
Fasteignin er vel staðsett og með frábært útsýni til norðurs.
Stutt er í góðar gönguleiðir og náttúru.

***Seljandi skoðar skipti á minni eign***


Fasteignin skiptist í fjögur herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, gestasnyrtingu, búr, þvottahús og forstofu.
Komið er í flísalagða forstofu þar sem eru skápar. 
Við forstofu er rúmgott þvottahús með máluðu gólfi.
Stofa er parketlögð, gluggar og svalahurð snúa í austur. Við svalahurð er pallur.
Eldhús er parketlagt, viðarlituð innrétting með hvítum hurðum og grárri borðplötu. Flísar eru á milli efri og neðri skápa. Skipt var um sökkul og fronta á innréttingunni fyrir um 10 árum. Borðkrókur með gluggar í norður. Frábært útsýni. 
Við eldhús er dúklagt búr með hillum.
Hol er parketlagt og þar við er gestasnyrting.
Herbergisgangur er parketlagður, þar við eru fjögur rúmgóð herbergi og baðherbergi.
Herbergi eru öll parketlögð, skápar í einu þeirra.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, ljós innrétting við vask með viðarborðplötu. Baðkar. Handklæðaofn.

Vestan við húsið er hellulögð verönd þar sem er heitur pottur.
Á lóðinni er garðskúr og í hann er komið rafmagn og tveir tenglar. Hleðslutengi er utan á skúrnum.
Bílaplan er malarborið.
Unnið er í lóðinni sem stendur, verið er að setja nýja möl við húsið.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/03/200714.800.000 kr.17.000.000 kr.129.8 m2130.970 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbær 109d
Skoða eignina Hraunbær 109d
Hraunbær 109d
110 Reykjavík
113.3 m2
Raðhús
413
861 þ.kr./m2
97.500.000 kr.
Skoða eignina Risadalur 1A
Skoða eignina Risadalur 1A
Risadalur 1A
260 Reykjanesbær
108.7 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
689 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Móasíða 2 E
Á einni hæð
Skoða eignina Móasíða 2 E
Móasíða 2 E
603 Akureyri
138.1 m2
Raðhús
413
629 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarsíða 5
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Arnarsíða 5
Arnarsíða 5
603 Akureyri
138.2 m2
Raðhús
413
753 þ.kr./m2
104.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin