Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2024
Deila eign
Deila

Aðalstræti 63

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
292.2 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
4 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
410.335 kr./m2
Fasteignamat
90.950.000 kr.
Brunabótamat
110.400.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Byggt 1904
Þvottahús
Garður
Útsýni
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2144698
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Í lagi, var endurnýjað fyrir um 25 árum
Raflagnir
Í lagi, var endurnýjað fyrir um 25 árum
Frárennslislagnir
Ekki vitað annað en að það sé í lagi
Gluggar / Gler
Gluggar voru endurnýjaðir fyrir um 25 árum
Þak
Þak var endurnýjað, járn og hluti af timbri árið 2019. Eftir er að tengja og ganga frá þakrennum á vesturhlið. Það er brunndæla og einhvers konar drenkerfi austanmegin við húsið og þakrennur eru tengdar inn á það.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir, gengið út á þær úr hjónaherbergi
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Seljendur mun klára ganga frá kringum útidyrahurð á norðurhliðinni. 
Gallar
Svalahurð úr hjónaherbergi er léleg/ónýt og hefur lekið inn með henni svo að parket fyrir innan er skemmt og ummerki eru í lofti í setustofu og við aðalinngang að vestan. 
Það þarf að klára frágang á svölum við hjónaherbergi og fara yfir flasningar og þéttingu milli húss og viðbyggingar/sólstofu.
Smávægilegur leki í bogadregna útskotinu/viðbyggingunni í stofunni, Líklega á samskeytum/flasningu og búið er að þétta það með kítti en ekki fullviss um hvort að búið sé að komast fyrir lekann endanlega. Hefur allavega ekki borið á því neitt.
Svalahurð úr eldhúsi er óþétt.
Gluggi í svefnherbergi í suðvesturhorni er lélegur.
Ekki er vitað um ástand á arin, núverandi eigendur hafa ekki notað hann. 
Einhver raki í útveggjum í kjallara í óupphituðum rýmum
Eignin er ekki í samræmi við þær teikningar sem til eru. 
Kvöð / kvaðir
Geymsluskúr á lóð fylgir ekki með við sölu eignar. 
Aðalstræti 63 - Fallegt einbýli með tveimur aukaíbúðum í kjallara á rólegum stað í Innbænum á Akureyri
Húsið var byggt árið 1904 og er 292,2 m² að stærð. 

Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, 
Hæð: Tvær forstofur, eldhús, tvöföld stofa, sólstofa, baðherbergi og þvottahús.
Efri hæð: Þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi, hol og geymsla.
Kjallari: 2 útleiguíbúðir, stúdíóíbúð og 3ja herbergja.


Aðalinngangur er á vesturhlið og þar er farið upp breiðar steyptar tröppur og gengið inn í dúklagða forstofu. 
Annar inngangur er á norðurhlið hússins. Þar er nýleg útidyrahurð og dúkur á gólfi. Við þennan inngang liggur stigi niður í kjallara og upp á efri hæðina. 
Eldhúsið er með dúk á gólfi og hvítri sprautulakkaðri innréttingu með viðarbekkplötu og máluðum flísum á milli skápa. Ágætur borðkrokur. Úr eldhúsi er farið út á timburverönd og af henni eru tröppur niður í garð.
Sólstofa er í framhaldi af eldhúsinu og þar er dúkur á gólfi. Eftir er að klæða upp í loftið. 
Stofan er tvöföld og þar er parket á gólfi og arinn. Úr stofunni til vesturs gengur fallegt bogadregið útskot sem setur skemmtilegan svip á húsið.
Baðherbergin eru tvö (fyrir utan útleiguíbúðir). Á hæðinni er baðherbergi með marmarakorkflísum á gólfi og fibo trespo þiljum á hluta veggja, dökkri innréttingu og eldri innfelldum skáp með speglahurðum. Upphengt wc, baðkar, handklæðaofn og fallegur eldri gluggi. Baðherbergi á efri hæðinni er með hydro kork á gólfi og fibo trespo þiljum á hluta veggja,  ljósri innréttingu, upphengdu wc og sturtu. Gengið er inn á baðherbergið bæði af holi og úr hjónaherbergi. 
Svefnherbergin eru fjögur á efri hæðinni, þrjú barnaherbergi með parketi á gólfi og svo rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi, litlu fataherbergi og hurð út á steyptar suður svalir. Epoxy efni er á svalagólfinu.
Þvottahús er með dúk á gólfi og hvítum skápum.
Í kjallara hússins eru tvær litlar útleiguíbúðir, báðar með sérinngangi.  Gengið er inn í aðra íbúðina á norðurhlið hússins og hina á austurhlið.  Báðar eru íbúðirnar flísalagðar, með snyrtilegum viðarinnréttingum í eldhúsum, og baðkörum á baðherbergjum.
Önnur íbúðin er studíoíbúð og hin 3ja herbergja. 
Lóð hússins er afmörkuð með steyptum kanti að stærstum hluta.

Annað
- Húsið er timburhús á steyptum grunni og með timbur gólfi á milli hæða. 
- Fyrir um 25 árum síðan var húsið endurnýjað töluvert, húsið einangrað að klætt að utan með bárujárni auk þess sem skipt var um glugga.  Einnig var farið í ofna, vatns- og raflagnir.
- Rúmgott bílaplan með perlumöl er norðan við húsið og austurfyrir en sunnan við hús er grasflöt og trjágróður.  
- Húsið var múrviðgert að utan sumarið 2017 og sá hluti málaður.
- Sumarið 2019 var þak endurnýjað og árið 2020 voru svalir flotaðar og sett á þær epoxy efni. 
- Eignin er í einkasölu

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/01/201540.100.000 kr.36.000.000 kr.292.2 m2123.203 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lækjargata 4
Skoða eignina Lækjargata 4
Lækjargata 4
600 Akureyri
247.7 m2
Einbýlishús
1024
476 þ.kr./m2
118.000.000 kr.
Skoða eignina Eikarlundur 24
Bílskúr
Skoða eignina Eikarlundur 24
Eikarlundur 24
600 Akureyri
288.6 m2
Einbýlishús
725
450 þ.kr./m2
130.000.000 kr.
Skoða eignina Brekkugata 7
Skoða eignina Brekkugata 7
Brekkugata 7
600 Akureyri
250.4 m2
Einbýlishús
946
455 þ.kr./m2
114.000.000 kr.
Skoða eignina Hagaskógur 1
Bílskúr
Skoða eignina Hagaskógur 1
Hagaskógur 1
604 Akureyri
249.6 m2
Einbýlishús
524
461 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache