Fasteignaleitin
Skráð 6. júlí 2026

SPÁNAREIGNIR - Playa Flamenca

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
112 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
46.200.000 kr.
Fermetraverð
412.500 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
139060726
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Svalir og þaksvalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á VINSÆLUM STAÐ* *NÝLEGA ENDURNÝJAÐ* *3 SVEFNHERBERGI* *STUTT Á STRÖNDINA OG Í LA ZENIA BOULEVARD*


Fallegt einbýlishús á eftirsóttum stað sem hefur verið endurnýjað frá grunni með nútímalega hönnun, þægindi og næði í fyrirrúmi.

Húsið er afskaplega vel staðsett með tilliti til samgangna og þjónustu. Í innan við fimm mínútna göngufjarlægð er verslunarmiðstöðin La Florida, þar sem er að finna matvöruverslanir, veitingastaði, kaffihús, hárgreiðslustofur, bari og aðra nauðsynlega þjónustu. Fyrir þá sem elska sjóinn eru hinar vinsælu strendur Playa Flamenca og La Zenia í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Einnig er hin þekkta verslunarmiðstöð La Zenia Boulevard, með yfir 160 verslanir, veitingastaði og fjölbreytta afþreyingu, í stuttri fjarlægð. Þetta gerir eignina að frábærum valkosti hvort sem um er að ræða fasta búsetu, sumarhús eða fjárfestingu.

Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869


Nánari lýsing:
Hreinar línur og glæsileg útisvæði vekja athygli við fyrstu sýn. Fallegur garður umlykur húsið og býður upp á fjölbreytt útisvæði til að njóta allt árið um kring. Þar er notalegt grillsvæði sem hentar fullkomlega fyrir samverustundir með fjölskyldu og vinum, og heitur pottur þar sem hægt er að slaka á og njóta hins einstaka miðjarðarhafsloftslags. Háir veggir umhverfis lóðina tryggja jafnframt mikið næði.

Verönd er yfirbyggð og lokuð og nýtist sem aukarými og skapar hlýlegt andrúmsloft þegar gengið er inn. Innanhúss tekur við bjart og rúmgott alrými þar sem stofa og borðstofa renna saman við glæsilegt, fullbúið opið amerískt eldhús. Skipulagið er einstaklega hentugt og tengir stofurýmið beint við garðinn og grillsvæðið, sem skapar fallegt flæði milli inni- og útisvæða.

Frá stofunni liggur gangur að svefnálmunni þar sem eru þrjú rúmgóð svefnherbergi og snyrtilegt baðherbergi með sturtu.

Húsið hefur allt verið endurnýjað í nútímalegum stíl þar sem hugsað hefur verið fyrir öllu. Niðurstaðan er glæsilegt og hlýlegt heimili. Húsið er fullbúið húsgögnum og því ekkert að gera nema flytja beint inn.

Eigninni fylgir einnig lokaður bílskúr sem gefur aukageymslupláss.

Verð: €319.000 (46.200.000 ISK miðað við gengi 1 evra = 145 ISK) auk kostnaðar við kaupin

Frábært tækifæri til að njóta lífsins við Miðjarðarhafið með öllum helstu þægindum innan seilingar.

Staðsetning:
Fjölmargir af bestu golfvöllum Costa Blanca svæðisins eru í næsta nágrenni, þar á meðal Las Ramblas, Campoamor, Villamartín, Vistabella og Las Colinas. Göngufæri er niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig, auk þess sem vinsæla verslunarmiðstöðin La Zenia Boulevard er í örstuttri fjarlægð. Alicante-flugvöllur er í um 50 mínútna akstursfjarlægð. Í nágrenninu er einnig mikið úrval veitingastaða, kaffihúsa og verslana sem auðvelt er að komast til gangandi.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: einbýli, bílskúr, endurnýjað, strönd, golf, 
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
139060726

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbær 109d
Skoða eignina Hraunbær 109d
Hraunbær 109d
110 Reykjavík
113.3 m2
Raðhús
413
861 þ.kr./m2
97.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturtún 32
Skoða eignina Vesturtún 32
Vesturtún 32
225 Garðabær
123 m2
Raðhús
413
975 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 5
Opið hús:06. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sjávarborg 5
Sjávarborg 5
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Skoða eignina Sjávarborg 5
Opið hús:06. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Sjávarborg 5
Sjávarborg 5
190 Vogar
130.4 m2
Raðhús
514
764 þ.kr./m2
99.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin