Fasteignaleitin
Opið hús:29. nóv. kl 13:00-13:30
Skráð 20. nóv. 2026

Réttarholtsvegur 33

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
109.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
749.314 kr./m2
Brunabótamat
55.950.000 kr.
Byggt 1961
Sérinng.
Fasteignanúmer
20360591
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is kynna í einkasölu:

Réttarholtsvegur 33 – Vel skipulagt 109,3 fm raðhús á þremur hæðum með skjólsælum suður garði.  Á fyrstu hæð er forstofa, eldhús og björt stofa með útgengi út í skjólsælan garð, á efri hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Úr forstofu er gengið niður í kjallara en þar eru þvottahús og geymsla í rúmgóðu rými.  Eigninni fylgja tvö bílastæði. Hér er um að ræða fallega eign sem býður upp á ýmsa möguleika fyrir fjölskyldufólk sem vill búa í grónu og eftirsóttu hverfi. 

Skipulag og nánari lýsing:

Forstofa er með flísalögðu gólfi.
Eldhús með upprunalegri innréttingu og góðu skápaplássi, gluggi snýr til norðurs.  
Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum til suðurs og  útgengi  út í skjólsælan garð.
Stigi liggur  upp á efri hæðina frá gangi.
Hjónaherbergið er rúmgott með eldri fataskáp og  tveimur gluggum til suðurs og fallegu útsýni.
Herbergi: sem notað er sem svefnherbergi,  gluggi snýr í norður.
Herbergi sem notað er sem skrifstofa, gluggi snýr í norður.
Baðherbergið er með þakglugga og var endurnýjað 2014, flísar á gólfi og veggjum, wc á vegg, vaskur, handklæðaofn og baðkar með sturtu,
Gengið er úr forstofu niður í kjallara sem er 22,9 fm og er nýttur í dag sem þvottahús og geymsla.  Kjallarinn bíður upp á ýmsa möguleika fyrir nýja eigendur.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin að sögn seljanda og var húsið m.a. múrviðgert og málað fyrir þremur árum og gluggar endurnýjaðir fyrir u.þ.b. fimmtán árum. Húsfélagið er að safna fyrir endurnýjun á þaki og þakgluggum. Eigninni fylgia tvö bílastæði.
Hér er um að ræða áhugaverða eign á þremur hæðum  með skjólsælum suður garði. Eign sem vert er að skoða fyrir þá sem leita að raðhúsi í vinsælu og grónu hverfi.

Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 690 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is 

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Anna Sigurðardóttir lögg.fasteignasali s: 898-2017 eða anna@aldirfasteignir.is


Til fróðleiks!
Fossvogsdalur er einn fjölfarnasti útivistarstaður höfuðborgarsvæðisins. Göngustígur dalsins er vel tengdur við stígakerfi höfuðborgarsvæðisins og er auðvelt að fara þaðan á hjóli eða fótgangandi á ylströndina í Nauthólsvík, út á strandlengjuna á Kársnesi eða inn í Elliðaárdal. Í dalnum má finna fjöldann allan af afþreyingarmöguleikum. 








 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 50A
3D Sýn
Skoða eignina Skipholt 50A
Skipholt 50A
105 Reykjavík
106,7 m2
Fjölbýlishús
312
806 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina Grettisgata 98
3D Sýn
Skoða eignina Grettisgata 98
Grettisgata 98
105 Reykjavík
116,9 m2
Fjölbýlishús
513
769 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (111)
Hleðslustöð
Opið hús:22. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (4).png
Skoða eignina Laugaborg (111)
Laugaborg (111)
105 Reykjavík
119,5 m2
Fjölbýlishús
413
919 þ.kr./m2
109.800.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (107)
Hleðslustöð
Opið hús:22. nóv. kl 13:00-13:30
móa_vefur (4).jpg
Skoða eignina Laugaborg (107)
Laugaborg (107)
105 Reykjavík
108,2 m2
Fjölbýlishús
313
960 þ.kr./m2
103.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin