Fasteignaleitin
Opið hús:20. ágúst kl 17:15-17:45
Skráð 13. ágúst 2026

Hverfisgata 39

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
96.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.900.000 kr.
Fermetraverð
815.926 kr./m2
Fasteignamat
74.550.000 kr.
Brunabótamat
43.200.000 kr.
Mynd af Heiðrekur Þór Guðmundsson
Heiðrekur Þór Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
viltu.isEignalisti
Byggt 1936
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2003295
Landnúmer
101068
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Vatnslagnir
Neysluvatnslagnir í þessum hluta stigahúss endurnýjaðar 2026
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir að hluta á einhverjum tímapunkti en ártal ekki þekkt
Þak
Endurnýjað á einhverjum tímapunkti en ártal ekki þekkt
Svalir
Byggingarstig
B4 - Fullgerð bygging

Viltu fasteignir kynna 96,7 fm þriggja herbergja íbúð á 4. hæð á mjög eftirsóttum stað miðsvæðis í Reykjavík - Mikið og gott útsýni - Stórar sameiginlegar þaksvalir.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Íbúðin er björt og vel skipulög. Í dag er 1 svefnherbergi en auðvelt væri að nýta aðra stofuna sem stórt svefnherbergi líka.

Eignin skiptist í forstofu/hol, tvær rúmgóðar samliggjandi stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla sem fylgir íbúð. Á efstu hæð eru stórar sameiginlegar þaksvalir fyrir íbúa hússins.

Eignin er skráð 96,7 og skiptist í 88,6m2 íbúð á hæð og 8,1m2 geymslu í kjallara.

  • Frábært útsýni yfir Esjuna og sjóinn.
  • Stofur og herbergi mjög rúmgóð og björt.
  • Neysluvatnslagnir endurnýjaðar 2026.
  • Inngangur í húsið bæði að framan frá Hverfisgötu og að aftan frá Veghúsastíg.
  • Falleg steinklæðning með hrafntinnu.
  • Engar íbúðir í húsinu eru notaðar í skammtímaleigu.


Nánari lýsing:

Stigagangur er snyrtilegur, teppalagður með svalir á hverri hæð.
Forstofa/hol. Frá stigapalli er gengið í gott hol með parket á gólfi. Þaðan er gengið í aðrar vistarverur íbúðar.
Eldhús er rúmgott og bjart. Gott útsýni til sjávar og fjalla. L-laga hvít eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, flísalagt er þar á milli. Gert ráð fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðum fataskápum og fallegt og gott útsýni til sjávar og fjalla. Parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, salerni og baðvaski. Nýlega endurnýjaður vaskaskápur og speglaskápur yfir honum.
Stofan er tvöföld með rennihurðum (auðvelt er að nýta annað þeirra sem svefnherbergi) Hvorutveggja eru mjög rúmgóð og björt rými, parket á gólfum.
Þvottahús: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús fyrir íbúa. Hver með sína vél.
Geymsla: Í kjallara er sér 8,1m2 geymsla fyrir íbúðina.
Í kjallara á sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt snyrtingu.

Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is

    Nánari upplýsingar í síma 583-5000 eða hvad@viltu.is

    Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
    Allt innifalið.
    Kynntu þér málið á Viltu.is

    Fyrirvarar:

    Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

    Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

    DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
    12/10/202040.350.000 kr.44.900.000 kr.96.7 m2464.322 kr.
    22/03/200716.010.000 kr.20.000.000 kr.96.7 m2206.825 kr.
    Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

    Myndir (38)

    Sambærilegar eignir

    Skoða eignina Laugaborg (204)
    Hleðslustöð
    L204.png
    Skoða eignina Laugaborg (204)
    Laugaborg (204)
    105 Reykjavík
    98.1 m2
    Fjölbýlishús
    312
    1008 þ.kr./m2
    98.900.000 kr.
    Skoða eignina Laugaborg (312)
    Hleðslustöð
    L312.png
    Skoða eignina Laugaborg (312)
    Laugaborg (312)
    105 Reykjavík
    104 m2
    Fjölbýlishús
    412
    1028 þ.kr./m2
    106.900.000 kr.
    Skoða eignina Laugaborg (0227)
    Hleðslustöð
    DJI_0824_v2.jpg
    Skoða eignina Laugaborg (0227)
    Laugaborg (0227)
    105 Reykjavík
    81.6 m2
    Fjölbýlishús
    312
    998 þ.kr./m2
    81.400.000 kr.
    Skoða eignina Laugaborg (225)
    Hleðslustöð
    225 nýr áfangi.png
    Skoða eignina Laugaborg (225)
    Laugaborg (225)
    105 Reykjavík
    110.5 m2
    Fjölbýlishús
    312
    967 þ.kr./m2
    106.900.000 kr.
    Fasteignaleitin
    Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
    Hafðu samband
    © Copyright 2026 - Fasteignaleitin