Valhöll fasteignasala kynnir: fallegt, vel skipulagt 277 m2 einbýlishús með bílskúr á stórri og einstaklega gróðursælli endalóð í rólegri botlangagötu. Húsið er fallega hannað og teiknað og byggt af Sigurði Hákoni Thoroddsen arkitekt. Alrými hússins er einstaklega bjart með gluggum á alla vegu og góðri lofthæð. Þaðan er gengið út á rúmgóðar suðvestur svalir. Húsið er teiknað með 5 svefnherbergjum en búið er að sameina tvö þeirra í eitt stórt herbergi (auðvelt að breyta til baka). Garðurinn er er glæsilegur með stórri og skjólsælli viðarverönd til suðurs. Til viðbótar við skráða fermetra er óskráð og óinnréttað rými, um 25 m2, sem býður upp á mikla möguleika. Eignin er mjög vel staðsett innan hverfisins og stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og aðra þjónustu.
Bókið einkaskoðun hjá Óskari H. Bjarnasen fasteignasala / lögmanni í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is
Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er íbúðarhlutinn skráður 247,4 m2 auk 29,9 m2 bílskúrs, alls 277,3 m2. Til víðbótar við þetta er óskráð, óráðstafað rými undir bílskúr sem er u.þ.b. 25 m2
Lýsing eignar:
Gólfefni: á gólfum anddyris og á baðherbergjum eru fallegar marmara flísar. Stofa/borðstofa er teppalögð en parket er á öðrum rýmum.
Íbúðarrými efri hæðar hússins er skráð 133,9 m2 að stærð og skiptist þannig:
Anddyri: marmaraflísar á gólfi og veggjum.
Forstofa: úr anddyri er gengið inn í bjarta forstofu sem leiðir inn önnur rými efri hæðar og stiga niður á neðri hæð. Parket er á gólfi og þar eru fataskápar.
Baðherbergi efri hæðar: er með glugga, marmaraflísum á gólfi og veggjum. Sturta, klósett og vaskur. Hægt er að ganga inn í baðherbergið bæði úr holi og frá hjónaherbergi.
Hjónaherbergi: rúmgott, parketlagt með góðum fataskápum.
Alrými: er mjög rúmgott og samanstendur af stofu og borðstofu. Um er að ræða fallega hannað, bjart og opið rými með glugga á fjóra vegu og mjög góðri lofthæð. Gengið er út á stórar suður svalir. Gert er ráð fyrir arni í stofu.
Eldhús: er með vandaðri, upprunarlegri viðar innéttingu. Marmaraflísar á veggjum. Borðkrókur. Uppþvottavél fylgir.
Búr: inn af eldhúsi er rúmgott búr, með dúk á gólfi.
Neðri hæð er skráð 113,5 m2. og skiptist þannig:
Úr forstofu er gengið niður á neðri hæð niður fallegan stiga með stórum glugga sem hleypir birtu inn í rými hússins.
Alrými neðri hæðar: er rúmgott rými og má til að mynda nota sem sjónvarpshol. Þaðan er gengið inn á baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús, geymslu og út í garð. Á teikningu eru svefnherbergin á neðri fjögur en búið er að sameina tvö herbergjanna í eitt stórt. Alls eru því fjögur svefnherbergin í húsinu í dag, að meðtöldu hjónaherberginu á efri hæð, en auðvelt er að bæta við fimmta svefnherberginu með að setja upp vegg milli tveggja herbergja.
Svefnherbergin þrjú: eitt mjög stórt með fataskápum, eitt rúmgott með fataskápum og eitt minna.
Baðherbergi: er með fallegum marmaraflísum á gólfi og veggjum. Klósett, baðkar og snyrtilega innrétting.
Þvottahús: er rúmgott með dúk á gólfi. Þvottarenna er úr hjónaherbergi á efri hæði niður í þvottahús.
Geymsla: Við hlið þvottahússins er mjög rúmgóð geymsla.
Óskráð rými: Undir bílskúr er óinnréttað og óskráð rými sem telur um 25 m2. sem býður upp á mikla notkunar möguleika.
Bílskúr: er skráður 29,9 m2 með glugga, heitu og köldu vatni.
Garðurinn er einstaklega fallegur og hefur augljólega verið haldið vel við í gegnum árin.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í mjög rólegu, friðsælu og grónu umhverfi mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í alla þjónustu, m.a. í Mjóddina, auk þess er íþróttasvæði ÍR og skólar örstutt frá. Hér er um að ræða glæsilegt, fallegt og vel hannað einbýlishús í eftirsóttu hverfi.
Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.