Fasteignaleitin
Skráð 27. ágúst 2026

Skuggabakki 2

HesthúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
79.1 m2
Verð
31.900.000 kr.
Fermetraverð
403.287 kr./m2
Fasteignamat
12.220.000 kr.
Brunabótamat
25.000.000 kr.
MS
Magga Sigríður Gísladóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
Sérinng.
Fasteignanúmer
2084436
Landnúmer
125109
Húsgerð
Hesthús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sjá lýsingu
Raflagnir
Sjá lýsingu
Frárennslislagnir
Sjá lýsingu
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
25
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Magga Gísladóttir lgf.  hjá RE/MAX kynnir:
Mjög mikið endurnýjað 5 hesta hús við Skuggabakka 2 í Mosfellsbæ. Húsið er endahús í fjögurra húsa lengju á mjög góðum stað í hesthúsahverfi Mosfellsbæjar. Húsið var allt tekið í gegn 2017. Vel var staðið að endurnýjun hússins og allur frágangur er afar snyrtilegur og til fyrirmyndar.
Allar upplýsingar veiti Magga í síma 698 7494/magga@remax.is

2017 var ný hæð byggð ofan á húsið með kaffistofu og salerni. Mikið útsýni er frá efri hæðinni.
Kaffistofan er með mjög góðri aðstöðu og nægt rými fyrir sófa og eldhúsborð. Í eldhúsinnréttingu er ísskápur og helluborð. Rýmið er mjög bjart með glugga í þrjá áttir. Útsýni yfir til Esjunnar og til sjávar. Einnig eru gluggar þar sem sést yfir gerðið. Á neðri hæð var sett ný einangrun og nýtt blikk. Stíur endurnýjaðar, veggir klæddir í hlöðu og hnakkageymslu.
 Að sögn eiganda hafa eftirfarandi endurbætur verið gerðar:
*Endurnýjaðar vatns- og frárennslislagnir
*Dregið í nýtt rafmagn og ný rafmagnstafla.
*Hitaveita er í húsinu. Snjóbræðsla er fyrir utan og hiti í gólfi á gangi milli stía og í   hnakkageymslu.
* Góð vifta og vatnslögn er við enda stíanna.
*Tvær eldvarnarhurðir eru í húsinu. Annars vegar við hnakkageymslu og hins vegar við hlöðu.
*Sér gerði fyrir framan hús.
*Nýbúið að mála allt húsið að utan og glugga að innan á neðri hæð.
*Heitt og kalt vatn í hnakkageymslu og góð lýsing inn í stíum.
*Taðþró er með húsinu við hliðina og henni er deilt með næsta bili.
*Vatn og rafmagn er á sér mæli.
*Góð aðstaða er fyrir hnakka, reiðtygi og föt.

 
Húsið er mjög snyrtilegt og frábær aðstaða fyrir hesta og menn.
Samkvæmt HMS er hesthúsið skráð 54 fm og kaffistofan 25,1 fm. 
Hestamannafélagið er eitt af elstu félagasamtökunum í Mosfellsbæ og fagnaði 75 ára afmæli í fyrra. Hörður heldur uppi öflugu starfi fyrir bæði unga sem aldna og hefur uppá að bjóða glæsilega reiðhöll og félagsheimilið Harðarból. Félagið hefur í gegnum tíðina staðið fyrir mörgum mótum, námskeiðum og uppákomum og verið stór hluti af bæjarmenningunni.
Frábærar reiðleiðir eru allt í kring. Þeir sem greiða í Hestamannafélagið Hörður geta sótt um að fá úthlutað í haga fyrir sumarbeit.
Árleg gjöld utan lögveða eru:
Hestamannafélagið Hörður kr. 15.000,-.
Félag hesthúsaeigenda kr. 5000,-.

Laust til afhendingar við kaupsamning.
Nýr eignaskiptasamningur og lóðarleigusamningur hefur verið endurnýjaður til ársins 2050.
Allar upplýsingar veiti Magga í síma 698 7494/magga@remax.is

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/11/20073.534.000 kr.13.500.000 kr.54 m2250.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Flétturimi 36
Hleðslustöð
Opið hús:30. ágúst kl 16:00-16:30
Skoða eignina Flétturimi 36
Flétturimi 36
112 Reykjavík
93.2 m2
Fjölbýlishús
312
825 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B
Skoða eignina Jöfursbás 3B
Jöfursbás 3B
112 Reykjavík
60.3 m2
Fjölbýlishús
211
993 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás- íb 402 5B
Bílastæði
Opið hús:29. ágúst kl 11:30-12:00
Jöfursbás- íb 402 5B
112 Reykjavík
96.6 m2
Fjölbýlishús
312
879 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 404
Bílastæði
Opið hús:29. ágúst kl 11:30-12:00
Jöfursbás 3B íb 404
112 Reykjavík
94.6 m2
Fjölbýlishús
312
971 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin