Fasteignaleitin
Skráð 11. nóv. 2026

Frostafold 149

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
97.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
778.462 kr./m2
Fasteignamat
68.500.000 kr.
Brunabótamat
51.850.000 kr.
Mynd af Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1988
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Fasteignanúmer
2041705
Landnúmer
110053
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Gallar
Skemmd innaná hurð í barnaherbergi.  Nokkur gler/gluggar komin á tíma.
RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og töluvert endurnýjuð þriggja herbergja 97,5 fm.  íbúð á jarðhæð með sérinngangi og skjólgóðri verönd til suðurs á eftirsóttum stað við Frostafold 149, Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, borðstofu og stofu, tvö mjög rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.  Með eigninni fylgir sérgeymsla staðsett í sameign, ekki inní birtum fm. og sérmerkt bílastæði á lóð. 

* Sérinngangur og skjólgóð verönd til suðurs.
* Endurnýjað m.a. eldhús, baðherbergi og gólfefni.
* Sérmerkt bílastæði.
* Frábær staðsetning, stutt í alla helstu þjónustu og verslanir.


KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Falleg og fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað í Grafarvoginum.  Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, skóla, sundlaug, íþróttastarf ofl.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is


Nánari lýsing: Íbúðin er staðsett á jarðhæð með sérinngangi. Góð aðkoma er að húsinu.
Forstofa er flísalögð með nýlegum fataskápum. Hol tengir saman helstu vistarverur íbúðar.
Eldhús hefur verið endurnýjað, með fallegum hvítum innréttingum, efri skápum og grárri borðplötu.  Spanhelluborð, gufugleypir og bökunarofn í vinnuhæð. Harðparket á gólfum.
Borðstofa og stofa er í björtu opnu alrými, harðparket á gólfum. Fallegur skólskáli er í stofuhorni, getur nýst sem vinnuaðstaða eða leikhorn.  Úr stofu er útgengt út á stóra afgirta timburverönd til suðvesturs. 
Svefnherbergin eru tvö, mjög stór og rúmgóð með harðparketi á gólfum.  Í hjónaherbergi eru góðir fataskápar. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, falleg hvít innrétting með góðum speglaskáp og efri skápum, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu. Flísalagt gólf og veggir að mestu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Geymsla íbúðar er staðsett í sameign á jarðhæð (ekki í birtum fermetrum íbúðar).  Einnig er sameiginleg vagna og hjólageymsla staðsett í sameign.
Bílastæði íbúðar er sérmerkt á lóð við hús (sjá eignaskiptayfirlýsingu).  

Endurbætur og viðhald síðustu ára
2020-2024 var húsið múrviðgert og málað. Klæðning sett á suður-gafl. Skipt hefur verið um klæðningu á þakkanti og þak málað. Skipt hefur verið um glugga/gler að hluta en nokkur gler eru nú komin á tíma. 
2023 var baðherbergi endurnýjað. Ný vaskinnrétting, baðkar og glerþil.
2021 var eldhús endurnýjað. Sett ný eldhúsinnréttin og tæki. Nýr bökunarofn og spanhelluborð. 
2021 voru sett ný gólfefni, harðparket á alrými og svefnherbergi.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/10/202140.550.000 kr.47.500.000 kr.97.5 m2487.179 kr.Já
26/06/202062.050.000 kr.42.300.000 kr.97.5 m2433.846 kr.Já
21/03/201626.050.000 kr.30.000.000 kr.97.5 m2307.692 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Rauðavað 13
Opið hús:17. nóv. kl 12:15-12:45
stebbi_vefur.jpg
Skoða eignina Rauðavað 13
Rauðavað 13
110 Reykjavík
92,5 m2
Fjölbýlishús
211
811 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 143 201
Laugavegur 143 201
105 Reykjavík
83,5 m2
Fjölbýlishús
211
909 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 3 (103)
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
4.jpg
Ánanaust 3 (103)
101 Reykjavík
103,1 m2
Fjölbýlishús
312
874 þ.kr./m2
90.100.000 kr.
Skoða eignina Ánanaust 3 (303)
Opið hús:15. nóv. kl 13:00-13:30
7.jpg
Ánanaust 3 (303)
101 Reykjavík
102,1 m2
Fjölbýlishús
312
1053 þ.kr./m2
107.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin