Fasteignaleitin
Skráð 27. ágúst 2026

Hrísmóar 9

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
145.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
789.691 kr./m2
Fasteignamat
92.850.000 kr.
Brunabótamat
69.400.000 kr.
Mynd af Svavar Friðriksson
Svavar Friðriksson
Löggiltur fasteignasali.
Byggt 1985
Jarðhæð af 3
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2070778
Landnúmer
118838
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna: ***GARÐABÆR - BÍLSKÚR / AUKAÍBÚÐ*** 
Um er að ræða afar fallega og vel skipulagða 115,8m2, 3ja.- 4ra.herbergja íbúð (nr.101) auk 29,7m2 bílskúrs sem er að hluta til útbúinn sem stúdíóíbúð með sérinngangi. Forstofa, tvö til þrjú svefnherbergi, eldhús, borðstofa, stofa, sólstofa, tvennar svalir, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og auka stúdíóíbúð. Hjóla- og vagnageymsla í sameign. Næg bílastæði. Örstutt í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og fjölbreytta þjónustu.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS. 

Nánari lýsing eignar: 
Forstofa. Forstofa með góðum fataskáp og parketi á gólfi. 
Borðstofa. Rúmgóð og björt borðstofa með parketi á gólfi. Möguleiki er á að bæta við þriðja svefnherberginu. 
Stofa. Stór og björt stofa með parketi á gólfi. Útgengt er á svalir sem snúa til suðurs og austurs.
Sólstofa. Björt og skemmtileg sólstofa með parketi á gólfi. 
Svalir. Tvennar svalir. 
Hjónaherbergi. Rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi. Útgengt á svalir. 
Barnaherbergi. Gott herbergi með fataskápum og parketi á gólfi. 
Eldhús. Sérsmíðaðar innréttingar með miklu hirsluplássi. Helluborð, stór og fallegur loftgleypir. Bakaraofn í vinnuhæð. Tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi og á eldhúsvegg. Stórir gluggar með útsýni til vesturs. 
Eldhúskrókur. Bjartur eldhúskrókur með flísum á gólfi. 
Baðherbergi. Falleg viðarinnrétting. Salerni. Lokuð sturta með glerhurð. Flísar á gólfi og á veggjum.
Þvottahús. Sérþvottahús er innan íbúðar. 
Bílskúr. Bílskúrinn er tvískiptur þar sem búið er að útbúa stúdíóíbúð með sérinngangi annars vegar og rúmgóð geymsla annars vegar. 
Bílastæði. Næg bílastæði eru fyrir framan húsið. 
Sameign. Hjóla- og vagnageymsla í sameign. 
Umhverfi. Stutt er í leikskóla, skóla og aðra þjónustu. Má þar nefna Hofstaðaskóla, Flataskóla og Garðaskóla. Garðatorg með mikilli og fjölbreyttri þjónustu. Allt frá læknastofum, tannlæknastofum, apóteki, dagvöruverslun, veitingastaði, efnalaug, hönnunarsafn, fata- og skóbúðir, fasteignasölu, bókasafn, bæjarskrifstofur, ofl. Eins er íþróttamiðstöðin Ásgarður með sinni rómaðri sundlaug og mikilli íþróttastarfssemi í göngufæri. Litlatún; Veitingastaðir, bensínafgreiðsla, sólarhringsverslun, ísbúð og fleira.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/02/201429.900.000 kr.37.500.000 kr.145.5 m2257.731 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásbraut 1
Skoða eignina Ásbraut 1
Ásbraut 1
200 Kópavogur
147 m2
Fjölbýlishús
312
878 þ.kr./m2
129.000.000 kr.
Skoða eignina Ögurás 14
Heitur pottur
Opið hús:30. ágúst kl 15:00-15:30
Skoða eignina Ögurás 14
Ögurás 14
210 Garðabær
140.8 m2
Raðhús
524
994 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Hleðslustöð
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90.2 m2
Fjölbýlishús
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 11
Bílastæði
Skoða eignina Mosagata 11
Mosagata 11
210 Garðabær
108 m2
Fjölbýlishús
4
879 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin