Fasteignaleitin
Opið hús:09. ágúst kl 15:00-15:30
Skráð 5. ágúst 2026

Ögurás 14

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
140.8 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
993.608 kr./m2
Brunabótamat
79.300.000 kr.
Byggt 2001
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22514701
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir til sölu fallegt og vel skipulagt 140,8 fm raðhús á tveimur hæðum við Ögurás í Garðabæ.
Um er að ræða fjölskylduvænt sérbýli á vinsælum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og alla helstu þjónustu. Húsið skiptist á fyrstu hæð í forstofu, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgóða geymslu, bjarta stofu með aukinni lofthæð og eldhús. Á efri hæð eru sjónvarpshol, tvö herbergi (þar af eitt sem hefur verið skipt upp í tvö rými) og baðherbergi, auk geymsluaðstöðu undir súð. 
Lóðin er snyrtilega frágengin, hellulögð að framan en á baklóð er timburverönd með heitum potti sem býður upp á frábæra aðstöðu til útiveru

Nánari lýsing:
Forstofa: Flísalögð og afhendist með forstofuskáp frá GKS í sama útliti og í eldhúsi. .
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi eru á neðri hæð, bæði parketlögð og með fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt með hvítri innréttingu, baðkari og upphengdu salerni.
 Þvottahús: Flísalagt með góðri innréttingu og vinnuaðstöðu.
Geymsla: Rúmgóð parketlögð geymsla.
Stofa: Björt og rúmgóð parketlögð stofa með aukinni lofthæð og útgengi út á stóra timburverönd með heitum potti.
Eldhús: Flísalagt með fallegri GKS-innréttingu og steinborðplötu. Eldhúsinnrétting, heimilistæki og gólfflísar voru endurnýjuð árið 2025. Í innréttingunni er sérsmíðaður tækjaskápur frá GKS og stór ísskápur. 
Efri hæð: Þar er parketlagt sjónvarpshol, tvö svefnherbergi, þar af eitt sem hefur verið skipt upp í tvö rými og nýtist því sem þrjú herbergi. Baðherbergið er flísalagt og búið sturtuklefa og upphengdu salerni. Góð geymsluaðstaða er undir súð.
Hér er um að ræða einstaklega fallegt og vel viðhaldið fjölskylduhús á eftirsóttum stað í Garðabæ.
Húsið var málað að utan 2025.
 
Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari  í síma 897-1401 brandur@fastborg.is  hjá BORG fasteignasölu.


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 14 (201)
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (201)
210 Garðabær
128.8 m2
Fjölbýlishús
423
931 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (204)
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (204)
210 Garðabær
131.6 m2
Fjölbýlishús
423
911 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (301)
Skjámynd 2026-06-05 135054.png
Vorbraut 14 (301)
210 Garðabær
130.3 m2
Fjölbýlishús
423
943 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 93
Efsta hæð
Skoða eignina Suðurgata 93
Suðurgata 93
300 Akranes
153.9 m2
Fjölbýlishús
523
584 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin