LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallegt og mikið endurbætt fjölskylduraðhús með stakstæðum bílskúr við Stekkjarhvamm 24 í Suðurbæ Hafnarfjarðar. Um er að ræða einstaklega vel skipulagða eign sem hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum, m.a. með nýlegum innréttingum og tækjum, innihurðum, gólfefnum og vönduðu stigahandriði. Þá var einnig settur stór gluggapóstur með svalahurð settur í stofurými sem eykur birtu og tengingu við skjólgóðan garðinn. Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og alla helstu þjónustu.
Birt stærð eignarinnar er 184,8 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er stakstæður bílskúr 23,9 fm.
Eignin skiptist í bjart og opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fjögur til fimm rúmgóð svefnherbergi, leikherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og stakstæðan bílskúr.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing 1. hæð (71,3 fm)
Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Þvottahús með glugga innaf forstofu, lokað af með skápahurðum á smekklegan hátt, flísar á gólfi.
Eldhús með nýlegri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél, harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými, harðparket á gólfi og útgengt á afgirta timburverönd til suðvesturs.
Baðherbergi nýlega endurbætt, flísalagt að mestu með gólfhita, upphengdu salerni og walk-in sturtu.
Nánari lýsing 2. hæð (71,6 fm)
Hjónaherbergi með nýlegum fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi I með nýlegum fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi II með harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi III, nýtt sem fataherbergi í dag, harðparket á gólfi og útgengt á suðaustursvalir.
Nánari lýsing 3. hæð (18 fm)
Leikherbergi, nýtt sem leikherbergi í dag en býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, svo sem sem auka svefnherbergi, sjónvarpsherbergi eða heimaskrifstofu.
Bílskúr (23,9 fm)Stakstæður bílskúr framan við húsið.
Lóðin er gróin og fullfrágengin með góðum timburveröndum bæði að framan og aftan við húsið sem skapa notalega umgjörð fyrir útiveru og samveru fjölskyldunnar.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.