LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir fallega og einstaklega vel skipulagða 92,6 m2 3.herbergja íbúð á jarðhæð með stórri timburverönd til suðurs með skjólveggjum .Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn skráður 82,5 m2 og geymsla íbúðar 10,1 m2. Íbúðin skiptist í forstofu hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign og sameiginleg hjólageymsla. Fallegt útsýni til Esjunnar frá svefnherbergjum.
Nánari lýsing á íbúð:
Forstofan er parketlögð með fataskáp.
Hol með parketlögðu gólfi.
Stofan er björt með parketi á gólfi og útgengi út á stóra timburverönd til suðurs með skjólveggjum.
Eldhús er parketlagt með málaðri viðarinnréttingu mef efri og neðri skápum, nýleg borðplata, og nýlegt span helluborð, ofn og vifta,gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Barnaherbergi er parketlagt með fataskáp.
Hjónaherbergi er parketlagt með fataskápu.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting með efri og neðri skáp, handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi , tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur, hillur og þvottasnúrur.
Sérgeymsla er í sameign og sameiginleg hjólageymsla.
Húsgjöld eignarinnar eru 17.242 kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, rafmagn í sameign, húseigandatrygging (VÍS), allur hitakostnaður, þrif sameignar, sorptunnuþrif, garðsláttur og snjómokstur eftir þörfum
Frábærlega vel staðsetta eign. Stutt er í alla helstu þjónustu, matvöruverslun (Krónan), skóla, leikskóla, útivistarstæði, golfvöll og margt fleira. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is