Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Hafnarstræti 23 íbúð 102 - Mjög skemmtilega uppgerð 2-3ja herbergja íbúð í fallegu timburhúsi í Innbænum - Stærð 53,8 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, skrifstofu/aukaherbergi, baðherbergi og þvottahús í sameign.
Forstofa er með opnu fatahengi og gólf er flotað.
Eldhús er með dökkri innréttingu, með innbyggðum ísskáp og stæði fyrir uppþvottavél sem fylgir með við sölu. Gólf er flotað.
Stofa/borðstofa er með flotuðu gólfi.
Svefnherbergi er með opnum fatahirslum og flot á gólfi.
Skrifstofa/aukaherbergi er innaf eldhúsi, þar er gólf flotað.
Baðherbergi er með vaski, upphengdu wc og walk-in sturtu. Flísar eru á gólfi.
Þvottahús er í sameign hússins og geymsluskápar við inngang.
Annað:- Mikið uppgerð íbúð.
- Gólfhiti er í íbúðinni
- Húsið var málað 2025 og skipt um járn á þaki árið 2021.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.