Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Miðfellsvegur 2e, 806 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 220-5721 ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindi. Eignin stendur á 4.295,0m2. leigulóð með gildandi leigusamning til 1. september 2049. Lóðin er vel gróin lóð með góðu útsyni. Eignin Miðfellsvegur 2e er skráð sem hér segir hjá HMS: Fastanúmer: 220-5721, birt stærð 41.7 fm.
Nánari lýsing:
Eignin er timburhús en klætt að utan rauðmáluðu stáli og svörtu járni á þaki. Góður sólpallur er umhverfis húsið húsið að hluta þar sem gengið er niður stiga á annan pall þar sem heitur pottur er.
Eignin er á tveimur hæðum. Á neðri hæð er herbergi og skáli/stofa, eldhús, baðherbergi og stigi upp á svefnloft, hálf manngengt. Gengið er inn að framanverðu í skála/stofu með kamínu. Á hægri hönd er herbergi sem nýtt er sem stofa með svefnsófa, en gæti verið hjónaherbergi. Að innan á neðri hæð er panill á veggjum og í lofti. Á lofti er panill málaður hvítur, en á veggjum er hann málaður grænn í alrými og blár í eldhúsi. Í stofu er loft upptekið, með þakglugga sem veitir birtu inn í rými, og kamínu. Á gólfi er lakkað spónarparket. Í baðherbergi er panill málaður hvítur á veggjum og lofti, þar er sturtuklefi, salerni og vaskur. Lakkað spónarparket á gólfi. Í eldhúsi er hvít fulningar innrétting með eikarborðplötu og uppteknu lofti. Borðkrókur í eldhúsi.
Yfir rúmlega hálfu húsinu er svefnloft undir súð, hálf manngengt, með svefnplássi fyrir 5.
Huggulegur eldri bústaður, vel við haldið, á góðum stað í Úthlíðinni.
Nánari upplýsingar veitir Kristófer Ari Te Maiharoa Lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 6956134, tölvupóstur kristo@olafur.is. og Ólaf Björnsson, hrl. og löggiltur fasteignasali. oli@olafur.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 55.000 + vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.