Skráð 17. feb. 2026

A-gata 8

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
100.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
627.745 kr./m2
Fasteignamat
56.700.000 kr.
Brunabótamat
46.620.000 kr.
Mynd af Hlynur Halldórsson
Hlynur Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1968
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2208161
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
Upphaflegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Hraunhamar kynnir ákaflega fallegt heilsárs sumarhús ásamt einu minna gestahúsi á stórri lóð í Grímsnesinu, nánar tiltekið við A-götu 8, einungis 40 mínútur frá Reykjavík. Aðalhúsið er skráð 88,1 fm í Þjóðskrá Íslands en núverandi eigendur byggðu við húsið og er það nú um 98-100 fm. Gestahúsið er skráð 12,1 fm í Þjóðskrá Íslands. Lóðin er eignarlóð og er skráð 6.521 fm og vel gróin háum trjám og lággróðri. Svæðið er lokað með fjarstýrðu bómuhliði. Heitur pottur er við aðalhúsið og stór pallur sem umlykur það. Til viðbótar er lítill geymsluskúr og lítið hús fyrir börn að leika. Húsið er á steyptum grunni. Sjón er sögu ríkari, 

Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi.
Eitt rúmgott herbergi er til vinstri í anddyrinu. 
Komið er inn í parketlagt stórt hol þar sem hjónaherbergi og baðherbergi er á vinstri hönd og stofa, eldhús, búr og önnur herbergi eru á hægri hönd. 
Húsið er á tveim pöllum og er gengið úr holinu upp tvær tröppur upp á pall þar sem stofa, borðstofa og eldhús eru í stóru og björtu opnu rými. Parket er á gólfinu. 
Hjónaherbergi er stórt og rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergið er með sturtuklefa og parketi á gólfi.
Herbergi II er með dúk á gólfi og kojum, neðri koja er ein og hálf breidd. 
Herbergi III er með dúk á gólfi og er rúmgott og bjart. 
Eldhúsið, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu alrými með mikið pláss. 
Eldhúsið er með hvítri viðarinnréttingu sem núverandi eigendur settu upp í kringum 2008 og lýtur mjög vel út. Uppþvottavél undir ofni og innbyggður ísskápur og frystir.  
Stofan/borðstofa er björt og rúmgóð og parket á gólfi. Í stofunni er stór og fallegur arinn, klæddur grjóti úr Drápuhlíðarnámu sem er friðuð í dag. 
Búr/geymsla er í litlu rými á milli herbergja I og II. 
Gengið er út úr holinu út á stóran pall með heitum potti. 
Gestahúsið er skrá 12,1 fm í Þjóðskrá Íslands. Það er í dag notað sem vinnuaðstaða hjá núverandi eiganda en má hæglega nota sem gestahús.
Við hlið þess er köld geymsla og þar við hliðina er lítð hús sem ætlað er börnum að leika sér í. 
Viðarpallur umlykur allt húsið og er með heitum potti og litlum úti arin. Skorsteinninn er klæddur með grjóti úr Drápuhlíðarnámum. Lóðin er vel gróin háum trjám.
Félag húseigeinda á svæðinu sér um að halda vegum opnum yfir vetrartímann og er hægt að vera allt árið á staðnum. 

Núverandi eigendur byggðu við húsið á árunum 2008 og 2009 og tóku það allt í gegn, settu nýtt eldhús og ný gólfefni ofl. Veggir eru klæddir með norskum panil, náttúruleg viðarborð sem setja fallegan svip á húsið. Nokkrir veggir eru klæddir með Drápuhlíðargrjóti.

Hér er eign á ferðinni á frábærum stað í Grímsnesinu, einungis um 10 mínútur frá Selfossi og 40 mínútur frá Reykjavík. Stuttur vegur liggur af Þingvallavegi og inn á svæðið um lokað bómuhlið sem opnað er með síma. Þrastalundur er í tveggja mínútna fjarlægð og mikið um fallega staði og þjónustu í nágrenninu. Sjón er sögu ríkari.

Nánari uppl. gefa Hlynur Halldórsson lgf. hlynur@hraunhamar.is 
Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 helgi@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1968
1.2 m2
Fasteignanúmer
2208161
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
3.770.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smámýrarvegur 25
Smámýrarvegur 25
805 Selfoss
93.5 m2
Sumarhús
413
679 þ.kr./m2
63.500.000 kr.
Skoða eignina Smámýrarvegur 25
Smámýrarvegur 25
805 Selfoss
93.5 m2
Sumarhús
413
679 þ.kr./m2
63.500.000 kr.
Skoða eignina Gilvegur 4
Skoða eignina Gilvegur 4
Gilvegur 4
805 Selfoss
129 m2
Sumarhús
414
464 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjarbrekka 10
Skoða eignina Lækjarbrekka 10
Lækjarbrekka 10
805 Selfoss
82.9 m2
Sumarhús
413
759 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin