Fasteignaleitin
Skráð 15. okt. 2026

Gvendargeisli 52

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
138.9 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
96.900.000 kr.
Fermetraverð
697.624 kr./m2
Brunabótamat
84.930.000 kr.
Byggt 2005
2. hæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
22619681
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is kynna:
Falleg og rúmgóð fjögurra til fimm herbergja 138,9 fm endaíbúð á 2. hæð með sér inngangi og stæði i bílageymslu við Gvendargeisla 52 í Reykjavík. Í fjölbýlishúsinu sem byggt er árið 2005 eru alls 15 eignir með skilgreindum tveimur bílastæðum á hverja íbúð. Eignin er í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi í Grafarholti. Leikskólarnir Geislabaugur og Reynisholt og Sæmundarskóli eru í stuttu göngufæri. Í nágrenninu eru fallegar gönguleiðir og græn svæði, meðal annars við Reynisvatn og Úlfarsfell.

Laus til afhendingar við kaupsamning. 

Birt stærð íbúðar er 138,9 fm.
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu og borðstofu, fjögur svefnherbergi (þar af eitt skilgreint geymsla), fataherbergi (innaf hjónaherbergi), baðherbergi, þvottahús og stæði í bílageymslu. 

✅ Falleg og rúmgóð fjögurra til fimm herbergja endaíbúð 
✅ Sér inngangur og góðar svalir í suður
✅ Stæði í lokuðum bílakjallara með tengi fyrir rafbílahleðslu
✅ Fjögur rúmgóð svefnherbergi (eitt skráð geymsla) 
✅ Frábær staðsetning í afar fjölskylduvænu hverfi 


Nánari lýsing
Gólfefni íbúðar: Fljótandi parket á gólfum, flísar í forstofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.
Forstofa: Rúmgóð með fataskáp.
Eldhús: Bjart rými með borðkrók, eikar innrétting með flísum milli skápa, bakarofni, helluborði, vegghengdum háfi, og tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp. 
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð, útgengi á rúmgóðar svalir í suður. 
Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi (þar af eitt skráð geymsla) öll rúmgóð með fataskápum, nema í hjónaherbergi er fataherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með baðkari og sturtu yfir, glugga, baðinnréttingu, auka speglaskáp yfir salerni og handklæðaofni. 
Bílastæði í kjallara: Gott aðgengi, tengi fyrir rafbílahleðslu.
Lóð og bílaplan: Lóðin er 3.199 m² leigulóð í óskiptri hlutfallslegri sameign 15 séreigna.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Gerplustræti 23
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Gerplustræti 23
Gerplustræti 23
270 Mosfellsbær
113,8 m2
Fjölbýlishús
413
816 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Fróðengi 14
Bílskúr
Skoða eignina Fróðengi 14
Fróðengi 14
112 Reykjavík
136 m2
Fjölbýlishús
413
588 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Skyggnisbraut 6
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Skyggnisbraut 6
Skyggnisbraut 6
113 Reykjavík
106,9 m2
Fjölbýlishús
413
701 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Austurgerði 6
Bílskúr
Efsta hæð
Opið hús:08. nóv. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Austurgerði 6
Austurgerði 6
200 Kópavogur
157,8 m2
Hæð
614
710 þ.kr./m2
112.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin