Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Úlfarsbraut 102

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
115.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
801.553 kr./m2
Fasteignamat
83.150.000 kr.
Brunabótamat
81.200.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2307401
Landnúmer
205750
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt (2022)
Raflagnir
Upprunalegt (2022)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2022)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2022)
Þak
Upprunalegt (2022)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já suðvestur svalir
Lóð
19,03
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega 4ra herbergja endaíbúð á 1. hæð með sérinngangi, stórum suðursvölum, sérmerktu bílastæði og rúmgóðri geymslu við Úlfarsbraut 102 í Reykjavík. Um er að ræða einstaklega bjarta og vel skipulagða íbúð með glugga á þrjá vegu, í litlu fjölbýlishúsi byggt árið 2022. Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með aflokaðri þvottaaðstöðu, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu með útgengi út á rúmgóðar svalir til suðvesturs. Eignin stendur innst í botngötu, á rólegum og fjölskylduvænum stað í Úlfarsárdal þar sem stutt er í leikskóla, skóla, útivistarsvæði og alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is - *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 


Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 115,9 m², þar af er íbúð skráð 103,5 m² og sér geymsla 12,4 m² staðsett á jarðhæð. 

Staðsetning:
Einstaklega vel staðsett eign, innarlega í rólegri botngötu við suðvesturmörk Úlfarsárdals þar sem byggðin endar og óbyggð náttúrusvæði taka við. Húsið stendur á skjólsælum og sólríkum stað við Korpu með fallegum göngu- og hjólaleiðum í næsta nágrenni sem bjóða upp á einstaka útivist. Sundlaug, skólar, leikskólar og íþróttasvæði eru jafnframt í þægilegu göngufæri, sem gerir staðsetninguna einstaklega fjölskylduvæna.

Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi, góðum fataskáp og bekk með geymsluskúffum. 
Alrými er parketlagt, með samliggjandi eldhúsi, borðstofu og stofmeð glæilegu útsýni yfir Úlfarsárdalinn og útgengi á góðar suðvestur svalir. 
Eldhús og borðstofa er opin við stofu. Dökkar innréttingar með góðu skápaplássi og vönduðum tækjum m.a. innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum og fallegu útsýni yfir Úlfarsárdalinn.
Svalir eru rúmgóðar og sólríkar suðvestur svalir með miklu útsýni yfir óspillta náttúru.
Hol/gangur tengir saman aðrar vistverur íbúðar, pakert á gólfi og aðstaða fyrir lítið skrifstofurými. 
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp með rennihurðum, sem ná upp í loft og meðfram heilum vegg. Parket á gólfi.
Barnaherbergi I er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Barnaherbergi II er einnig rúmgott og bjart með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu, inngengri  sturtu með glerþili, upphengdu salerni og handklæðaofni. 
Þvottaaðstaða er innaf baðherbergi með góðri innréttingu undir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þvottaðastaða er aðskilin frá baðherbergi með rennihurð.
Geymsla er 12,4 m2 og staðsett í sameign hússins. 
Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni og búið er að leggja fyrir hleðslustöð við húsið.

FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Upplýsingar um endurbætur að sögn seljanda:
- Settur upp baðherbergisskápur frá Kvik með spegli og lýsingu fyrir ofan baðvask (2022)
- Settur upp auka eldhússkápur frá Kvik með lýsingu fyrir ofan eldhúsvask (2022)
- Bekkur með geymsluskúffum frá Kvik bætt við innréttingu í forstofu (2023)
- Forstofa flísalögð með 60x60 flísum frá Birgison (2023)
- Skipt var um parket í íbúðinni (2023)
- Hjólagrind sett upp við inngang íbúðarinnar (2025)

Um hverfið
Úlfarsárdalur hefur á örfáum árum orðið eitt vinsælasta fjölskylduhverfi Reykjavíkur. Þar er öll helsta þjónusta í göngufæri, svo sem leikskólar, grunnskóli, íþróttasvæði Fram, verslun og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir um fallegt útivistarsvæði Úlfarsárdals.

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/09/202252.800.000 kr.83.900.000 kr.115.9 m2723.899 kr.
07/09/20153.920.000 kr.90.000.000 kr.2613 m234.443 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skálatún 35 e.h.
Skálatún 35 e.h.
600 Akureyri
110 m2
Fjölbýlishús
413
654 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7D - 318
Eirhöfði 7D - 318
110 Reykjavík
71 m2
Fjölbýlishús
211
1013 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Kjarnagata 51 íbúð 104
Opið hús:01. júlí kl 16:15-16:45
Kjarnagata 51 íbúð 104
600 Akureyri
59.5 m2
Fjölbýlishús
211
839 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (203)
Opið hús:01. júlí kl 17:00-18:00
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (203)
210 Garðabær
69.6 m2
Fjölbýlishús
211
1033 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin