Fasteignaleitin
Skráð 23. apríl 2025

Hagasel 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
176.4 m2
5 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
623.016 kr./m2
Fasteignamat
111.200.000 kr.
Brunabótamat
88.200.000 kr.
Mynd af Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
Jarðhæð af 2
Garður
Svalir
Pallur
Fasteignanúmer
2054860
Landnúmer
112902
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Skipt hefur verið um alla rofa og tengla fyrir utan einn í stofu
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Rúmgóðar svalir og timburverönd
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Gallar
Ummerki voru um raka í horni upp við loft í geymsluhluta þvottahúss, einnig voru ummerki um raka á vegg í sjónvarpsrými og í lofti í forstofu og lofti gestasalernis. Seljendur fengu matsaðila frá tryggingafélagi til að rakamæla þessa staði og fylgir sú skýrsla með sölugögnum. Skv. skýrslunni mældist ekki raki á þeim stöðum sem voru mældir og hafa þeir verið lagfærðir. Skipt um hefur verið um loftaþiljur í andyri og gestasalerni. Skemmd er í flís á gólfi í eldhúsi. Sprungur eru í múr á austurgafli húss. Kominn er tími á að endurnýja svalahurð úr stofu. Skoða þarf lýsingu á lóð þar sem að hluti ljósa er óvirkur.
Domusnova og Ingunn Björg löggiltir fasteignasalar kynna 7 herbergja endaraðhús á tveimur hæðum við Hagasel 14 Breiðholti. Rúmgóð timburverönd. Mjög snyrtileg afgirt hellulögð stétt fyrir framan hús og meðfram húsi.  Húsið er staðsett í rólegum botnlanga, og nýtur næðis frá umferð bakvið hús þar sem að engin umferðargata liggur upp að húsi frá suðurhlið. 
Eignin skiptist á eftirfarandi hátt:  Forstofa, 5 svefnherberbergi, stofa / borðstofa, sjónvarpshol, 2 baðherbergi, eldhús, þvottahús, geymsla, bílskúr. Húsið var nýlega múrviðgert að utan og málað að sögn seljenda. Skv. FMR er eignin skráð 176,4 fm2 þar af er bílskúr skráður 18,8 fm2. 

Frábær staðsetning í Seljahverfinu. Stutt er í skóla og alla helstu þjónustu. Mikill uppgangur og frábært barna og unglingastarf hjá íþróttafélagi ÍR sem er í næsta nágrenni.

Frá því að húsið var byggt, hafa einungis tvær fjölskyldur búið í húsinu sem sýnir öðrum fremur hversu gott er að búa þar.

Nýlegar endurbætur að sögn seljenda : 
  • Allar innihurðar hafa verið endurnýjaðar. 
  • Skipt hefur verið um ramma á rofum og tenglum. 
  • Þakkantur endurnýjaður fyrir ca 6 árum. 
  • Hús sprunguviðgert og málað fyrir ca 4 árum. 
  • Lóð endurnýjuð 2015 - 16. Byggð ný verönd ásamt skjólveggjum, hellulagt meðfram húsi og verönd fyrir framan hús hellulögð. 
  • Skipt um loftaplötur í andyri og gestasalerni árið 2025.
  • Skipt um lista utan á öðrum glugga af tveimur í barnaherbergi á gafli hússins árið 2025.

Nánari lýsing:
Efri hæð:
Forstofa: Flísar á gólfi, skápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Vaskur, salerni.
Eldhús: Bjart og rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu, frístandandi tvöfaldur ísskápur ásamt frístandi eldavél með háf yfir. Fínn borðkrókur, gluggar á þrjá vegu. Flísar á gólfi. 
Barnaherbergi 1: Inn af eldhúsi er herbergi sem ekki er inn á upprunalegri teikningu. Bjart með harðparketi á gólfi. 
Stofa / borðsstofa: Harðparket á gólfi, hljóðdempandi plötur á vegg í borðsstofu, úr stofunni er útgengt á skjólríkar suðursvalir. 
Bílskúr: 18.8 fm2 , heitt og kalt vatn. 

Neðri hæð: 
Hringstigi liggur úr holi niður á neðri hæð. 

Sjónvarpshol: Rúmgott, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart, stór fataskápur. Parket á gólfi. Útgengt á rúmgóða timbur verönd sem snýr til suðurs.
Barnaherbergi 2: Rúmgott, parket á gólfi. 
Barnaherbergi 3: Parket á gólfi. 
Barnaherbergi 4: Parket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagðir veggir og gólf, innrétting undir vaski, rúmgóður háskápur ásamt skápum á vegg, handklæðaofn, sturta með innbyggðum blöndunartækjum, baðkar,  salerni.

Ath! Húsfélag hefur ekki verið starfrækt í raðhúsalengjunni. 

Nánari upplýsingar veita:
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Björkurstekkur 34
Bílskúr
Á einni hæð
Hleðslustöð
Björkurstekkur 34
800 Selfoss
178.4 m2
Parhús
514
541 þ.kr./m2
96.500.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7D íb.414
Bílastæði
Eirhöfði 7D íb.414
110 Reykjavík
112.2 m2
Fjölbýlishús
312
1042 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7D íb.319
Bílastæði
Eirhöfði 7D íb.319
110 Reykjavík
113.6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7D íb.219
Bílastæði
Eirhöfði 7D íb.219
110 Reykjavík
110.3 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin