Fasteignaleitin
Opið hús:01. okt. kl 18:00-18:30
Skráð 21. júní 2026

Eirhöfði 7D íb.319

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
113.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
106.900.000 kr.
Fermetraverð
941.021 kr./m2
Fasteignamat
92.300.000 kr.
Brunabótamat
68.150.000 kr.
Mynd af Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Fasteignasali
Byggt 2025
3. hæð
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534532
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
19
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, s. 863 8813, og Fasteignasalan TORG kynna glæsilega þriggja herbergja íbúð við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða.
Ártúnshöfði er að þróast í nýjan borgarhluta þar sem nútímaleg byggð, þjónusta og góðar samgöngur fara saman. Eirhöfði 7 er hluti af þessari uppbyggingu og býður upp á vandaðar íbúðir á góðum stað. Skoða heimasíðu verkefnisins.
Íbúð 319 er vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á 3. hæð, samtals 114,8 m², þar af er sérgeymsla 11 m². Íbúðin skiptist í anddyri með góðu skápaplássi, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, sérþvottahús og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi.
Stórir gluggar hleypa inn góðri birtu og úr stofunni er gengið út á 7,9 m² suðursvalir. Baðherbergið er flísalagt og búið vönduðum tækjum og innréttingum.

Bílastæði fylgir ekki íbúðinni. Kaupandi fær þó afnot af bílastæði í bílakjallara í tvö ár frá afhendingu. Hægt er að kaupa bílastæði með íbúðinni fyrir 7 milljónir króna til viðbótar við auglýst verð. Sérgeymsla fylgir íbúðinni.
Innréttingar eru frá Voke3 í litnum Kasmír grár, með Quartz borðplötum, Miele heimilistækjum og GROHE blöndunartækjum. Íbúðin er hönnuð af Rut Kára með áherslu á vandað efnisval og góða nýtingu rýmis.
Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta stað Ártúnshöfða. Þaðan er útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi svæði. Stutt er í útivist við Elliðaárdal, strandstíga og göngu- og hjólaleiðir. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi íbúa í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi.

Kaupendum við Eirhöfða 7 býðst að kynna sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, þar sem mögulegt er að kaupa með 10% útborgun, að uppfylltum skilyrðum leiðarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863 8813.



Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kuggavogur 3
Bílastæði
Skoða eignina Kuggavogur 3
Kuggavogur 3
104 Reykjavík
109.2 m2
Fjölbýlishús
32
787 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Fagurgerði 12 íb 202
Efsta hæð
Fagurgerði 12 íb 202
800 Selfoss
105.6 m2
Fjölbýlishús
313
727 þ.kr./m2
76.800.000 kr.
Skoða eignina Kuggavogur 17
Bílastæði
50 ára og eldri
Efsta hæð
Skoða eignina Kuggavogur 17
Kuggavogur 17
104 Reykjavík
93.7 m2
Fjölbýlishús
312
927 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 1a - (203)
Efsta hæð
Ásvellir 1a - (203)
301 Akranes
99 m2
Fjölbýlishús
413
717 þ.kr./m2
71.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin