Guðrún Antonsdóttir fasteignasali kynnir nýlega 4ra herbergja íbúð með bílskúr. Eignin er enn með smíðaábyrgð byggingaraðila.
** UPPLÝSINGAR UM EIGNINA VEITIR Guðrún Antonsdóttir fasteignasala s. 621-2020, gudrun@fastlind.is **Nánari lýsing eignar, 4ra herbergja íbúð á 3.hæð með sér inngang af svölum og 35,6 fm bílskúr með vaski og Topp 4000 á gólfi, bílastæði er fyrir framan bílskúr. Geymsla eignar er sér innan bílskúrs.
Forstofa með flísum gólfi og yfirhafnaskáp.
Eldhús með Nobilia innréttingum, hnotu innrétting með svörtum efri skápum og eyju frá GKS innréttingum. Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél. Bakaraofn í vinnuhæð, span helluborð er í eyjunni og nettur frístandandi háfur.
Stofa og opið eldhús sem eitt alrými
þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með fataskápum.
Baðherbergi með sturtuklefa, ljósri innréttingu, handlaug og upphengdu salerni.
Eignin sjálf er 107,8 fm, geymsla 12,8 fm og bílskúr 35,6 fm . Samtals 155,8 fm
Bílskúr og bílastæði fyrir framan í lokuðu bílastæðahúsi
Byggingaraðili er
Dalhús ehf, sem hefur sérhæft sig í byggingu gæða íbúðarhúsnæðis. Eigendur félagsins eru með áratuga reynslu í byggingu íbúða sem nú telja þúsundir. Aðaleigandi félagsins er Sigurður Sigurgeirsson og framkvæmdastjóri er Bjarni Már Bjarnason (byggingarstjóri). Sigurður og Bjarni hafa starfað saman í 30 ár að uppbyggingu íbúða með hagsmuni kaupenda að leiðarljósi.
Metnaður Dalhúss hefur verið bygging fullbúinna íbúða og góð þjónusta við kaupendur. Allar íbúðir afhendast með gólfefnum, helstu ljósum og öllum nauðsynlegum raftækjum í eldhúsi þannig að kaupandi getur flutt inn án mikillar fyrirhafnar.Allir Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 8 samstarfsaðilum. meðal annars er Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Ísleifur Jónsson, Parket og Gólf, Betra bak, Dorma, flísabúðin og Vodafone. Vertu með okkur í liði og fáðu Vildarkort
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.
Nánari upplýsingar um eignina og bókun á skoðun, hafið samband við Guðrún Antonsdóttir fasteignasala í síma 621-2020 eð tölvupóst gudrun@fastlind.is