Fasteignaleitin
Skráð 3. júlí 2026

Jöfursbás 11a

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
46.4 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
42.355.794 kr.
Fermetraverð
912.840 kr./m2
Fasteignamat
47.050.000 kr.
Brunabótamat
31.750.000 kr.
Mynd af Margrét Rós Einarsdóttir
Margrét Rós Einarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2516202
Landnúmer
228389
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
4
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Upprunalegt (2021)
Raflagnir
Upprunalegt (2021)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2021)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2021)
Þak
Upprunalegt (2021)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnota reitur í vestur
Lóð
0,65
Upphitun
Hitaveita og ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Sú kvöð fylgir eigninni að hámarks söluverð fylgir vísitölu íbúðaverðs í hverfinu.
Margrét Rós, lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu fallega 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð og sérafnotareit til vesturs við Jöfursbás 11A í Gufunesi. Um er að ræða smekklega eign í nýlegu fjölbýlishúsi frá árinu 2021. Íbúðin er björt og vel skipulögð með opnu eldhúsi og stofu, rúmgóðu svefnherbergi og baðherbergi með með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Frá stofu er útgengt á sérafnotareit til vestur með útsýni út að sjó. Eignin hentar einstaklega vel sem fyrsta eign og nýtur frábærrar staðsetningar við sjávarsíðuna með fallegu útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is
*** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** 


Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá HMS er 46,4 m² og eru allir fermetrar innan íbúðar.

Nánari lýsing
Forstofa er með flísum á gólfi, fataskáp, fatahengi og hillu.
Eldhús er opið inn í stofu með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Gluggi milli efri og neðri skápa veitir góða birtu. 
Stofa er í björtu og opnu rými og rúmar bæði stofu og borðstofu, með góðum gluggum og parket á gólfi. Úr stofu er gengið beint út á sérafnotareit með hellulagðri verönd.
Svefnherbergi er vel skipulagt með fjórföldum fataskáp, rennihurðir sem loka herberginu fara inn í vegg og góðum glugga. Parket á gólfi
Baðherbergi er snyrtilegt með sturtu, hvítri innréttingu við vask, speglaskáp, með upphengu salerni og innréttingu undir þvottavél í vinnuhæð. 

Íbúðin er öll nýlega máluð (2026). Þá var einnig settur upp nýr speglaskápur á baðherbergi, innrétting fyrir þvottavél og nýr sturtuklefi. 

FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉR

Húsið og sameign
Um er að ræða steinsteypt fjölbýlishús byggt árið 2021 á einstaklega fallegum stað við sjávarsíðuna í Gufunesi. Í húsinu er sameiginleg vagna- og hjólageymsla, sameiginlegt þvottahús með vélum til afnota og félagsaðstaða fyrir íbúa. Á húsfundi hefur jafnframt verið samþykkt að íbúðir á jarðhæð geti sett upp skjólveggi á veröndum sínum. Forgangur að kaupum fyrir einstaklinga á aldrinum 18–40 ára samkvæmt skilmálum verkefnisins.

Staðsetning
Jöfursbás er staðsettur í hinu vinsæla og ört vaxandi Gufuneshverfi þar sem náttúra og borgarlíf mætast á einstakan hátt. Sjávarsíðan er rétt við húsið með fallegum göngu- og hjólastígum, stórbrotnu útsýni yfir Geldinganes, Viðey og Esjuna. Í nágrenninu er fjölbreytt útivist, þjónusta, leik- og grunnskólar auk góðra samgangna.

Frábært tækifæri fyrir fyrstu kaupendur – íbúð við sjóinn í Gufunesi!

Nánari upplýsingar veita:
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 856-5858 / margret@fstorg.is
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is

KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉR


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/11/202543.700.000 kr.41.771.000 kr.46.4 m2900.237 kr.
06/04/202214.450.000 kr.29.435.000 kr.46.4 m2634.375 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Breiðavík 21
Skoða eignina Breiðavík 21
Breiðavík 21
112 Reykjavík
95.2 m2
Fjölbýlishús
312
766 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Fiskakvísl 13
B75A7554.JPG
Skoða eignina Fiskakvísl 13
Fiskakvísl 13
110 Reykjavík
66.5 m2
Fjölbýlishús
312
976 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðás 12
Opið hús:07. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Rauðás 12
Rauðás 12
110 Reykjavík
140 m2
Fjölbýlishús
614
661 þ.kr./m2
92.500.000 kr.
Skoða eignina Laugateigur 34
Opið hús:07. júlí kl 16:00-16:30
Skoða eignina Laugateigur 34
Laugateigur 34
105 Reykjavík
37.6 m2
Fjölbýlishús
111
1141 þ.kr./m2
42.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin