Fasteignaleitin
Opið hús:18. nóv. kl 18:00-18:30
Skráð 11. nóv. 2026

Krummahólar 51

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
85 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
940.000 kr./m2
Brunabótamat
53.550.000 kr.
Byggt 1989
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20493401
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS (alla virka daga milli kl.9 og 18) Í SÍMA 771-5211 EÐA GUDNYTH@ALDIRFASTEIGNIR.IS

ALDIR og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:
Krummahólar 51, Reykjavík – Töluvert endurnýjað raðhús á einni hæð með fallegu eldhúsi ásamt rúmgóðu alrými.
Samkvæmt fasteignayfirliti ríkisins er íbúðin 85,5fm. Auk þess hafa verið byggð við húsið 15fm sólskáli ásamt 29fm viðbyggingu sem eru ófullgerð og ekki hluti af skráðri stærð. Samtals er eignin 129,5fm.

Húsið hefur fengið töluverða endurnýjun að innan, meðal annars var lagður hiti í forstofu, þvottahús, baðherbergi, viðbyggingu og sólstofu, nýtt eldhús, harðviður á gólf ásamt flísum í votrými. Eldhúsið og stofan mynda bjart og opið alrými með stórum gluggum. Við húsið eru jafnframt ófullgerðar viðbyggingar sem bjóða upp á möguleika til frekari nýtingar, að fengnum samþykktum.

Helstu kostir
Fallegt og endurnýjað eldhús með eyju.
Opið og rúmgott alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast
Harðviðargólf
Endurbætur hafa verið gerðar á baðherbergi
Svefnherbergi með fataskápum
Sérþvottahús
Hús á einni hæð
Ófullgerð viðbygging þar sem fyrirhugað er svefnherbergi og baðherbergi

Lýsing eignar
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Frá forstofu er gengið inn í opið alrými hússins. Þvottahús er við forstofu.
Eldhús: Fallegt og rúmgott eldhús með ljósri innréttingu í bland við viðaráferð. Eldhúseyja með AEG helluborði með viftu í og góðu vinnuplássi. Innbyggðir ofnar í vinnuhæð og stórir gluggar sem hleypa góðri birtu inn. Eldhúsið er opið inn í borðstofu og stofu.
Borðstofa og stofa: Bjart og opið alrými með harðviðargólfi. Góðir gluggar og glerhurð að ófullgerðum sólskála. 
Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með harðviðargólfi ásamt fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með vegghengdu salerni, innréttingu með handlaug og sturtuaðstöðu. 
Þvottahús: Sérþvottahús með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Þar er einnig tæknibúnaður hússins.
Viðbyggingar og framkvæmdir
Reist hefur verið 29fm ófullgerð viðbygging við hlið hússins þar sem fyrirhugað er að útbúa svefnherbergi og baðherbergi. Framkvæmdir eru hafnar en frágangi er ólokið. Samkvæmt upplýsingum seljanda eru leyfismál viðbyggingarinnar í ferli og verður klárað fyrir afhendingu.
Sólskáli, um 15fm:  Við stofu er ófullgerður sólskáli með stórum gluggum. Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur sólskálinn ekki verið settur í leyfisferli.
Viðbyggingarnar eru ekki innifaldar í skráðri stærð eignarinnar samkvæmt fyrirliggjandi fasteignayfirliti. Seljendur munu skila eigninni með samþykktri teikningu á viðbyggngu en ekki sólskála.
Nánar um endurbætur
Samkvæmt upplýsingum seljanda voru eldhús og gólfefni endurnýjuð fyrir rúmu ári. Harðviður er á gólfum í helstu íbúðarrýmum. Einnig hafa verið gerðar endurbætur á baðherbergi.
Krummahólar 51 er áhugaverð eign fyrir þá sem kunna að meta fallegt og endurnýjað innra byrði og vilja jafnframt taka að sér að ljúka framkvæmdum við húsið.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vilja ALDIR því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila (0,4% við fyrstu kaup einstaklinga).
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. – samkvæmt gildandi gjaldskrá sýslumanns.
Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
Umsýsluþóknun til fasteignasölu – 79.900 kr. m.vsk.

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kötlufell 3
Efsta hæð
Skoða eignina Kötlufell 3
Kötlufell 3
111 Reykjavík
64,2 m2
Fjölbýlishús
211
731 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðavík 24
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:11. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Breiðavík 24
Breiðavík 24
112 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
312
778 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvegur 4
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Fossvegur 4
Fossvegur 4
800 Selfoss
79,2 m2
Fjölbýlishús
312
629 þ.kr./m2
49.800.000 kr.
Skoða eignina Vallengi 13
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Vallengi 13
Vallengi 13
112 Reykjavík
91,5 m2
Fjölbýlishús
312
764 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin