Bogi fasteignasali og Lind fasteignasala kynna til sölu: Lautargata 2 Garðabæ. Þakíbúð 0501, vesturendi.
Skráð alls 148,0fm. Íbúðarrými 139,7fm. Geymsla 8,3fm. Stæði í bílskýli fylgir merkt B01. Svo til viðbótar 73,5fm þaksvalir. Þrjú herbergi, tvö baðherbergi skv teikningu.
Lautargata 2: Húsið er fimm hæða fjölbýlishús með 19 íbúðum. Sjálfstæð bílgeymsla er við húsið. Burðarvirki hússins er staðsteypt úr járnbentri steinsteypu og útveggir klæddir með áli og trefjaplötum. Húsið er hannað af RÝMA arkitektar. Lóðin er 2224fm af stærð og er leigulóð í eigu Garðabæjar. Lóðin er leigð til 75 ára frá 2021. Níu bílastæði eru í bílgeymslu. Utanhúss eru 21 bílastæði.
Íbúðirnar eru 2ja - 4ra herbergja. 67 – 166fm. Á 1.hæð eru geymslur íbúða, inntök veitna og rafmagns, sorpgeymsla og sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Fyrir íbúð á 1. hæð er sérafnotareitur á garðhlið lóðar en á 2. hæð er sérafnotareitur fyrir tvær íbúðir. Hönnun og aðkoma miðast við þarfir fatlaðra. Í byggingunni er eitt stigahús og ein lyfta.
ÍBÚÐIRNAR: Íbúðirnar eru af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Á 1. hæð/jarðhæð er ein 2ja herbergja með sérafnotareit. Á 2. 3. og 4. hæð eru 5 íbúðir með sérinngang af svölum, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Á 5. hæð eru þrjár íbúðir. Í miðju er 3ja herbergja íbúð og í endum 4ra herbergja íbúðir. Íbúðir 5. Hæðar eru með stórum þaksvölum.
BYGGINGARLÝSING: Húsið er staðsteypt hús á hefðbundinn hátt, einangrað að utanverðu með 100 mm steinull. Yfir einangrun eru útveggir ýmist klæddir með loftræstri álklæðningu eða trefjaplötum sem fest er á þar til gert upphengikerfi úr áli. Álklæðiningin liggur lóðrétt úr riffluðum plötum með innbrenndum dökkbrúnum lit. Trefjaplötur eru í gráum lit. (sjá nánari byggingalýsingu á teikningum)
Frágangur innanhúss: Íbúðum er skilað fullbúnum án gólfefna , en með flísalögðu baðherbergi og þvottahúsi. Allar innréttingar eru frá Brúnás sérsmíðaðar, spónlagðar og eða spraulakkaðar. Steinn er á borðum í eldhúsi ,endagaflar þó spónlagðir og eða sprautulakkaðir með undirfræstum eldhúsvaski en borðplötur í baðherbergjum og þvottahúsi eru plastklæddar. Eldhústæki eru AEG frá Ormson. Blöndunartæki eru af gerðinni Hanza frá Tengi, handlaugar og wc skálar eru einnig frá Tengi.
Milliveggir: Milliveggir innanhúss eru hlaðnir og múraðir í kringum öll votrými, en aðrir milliveggir eru reistir úr blikkstoðum og klæddir með tvöföldu gipsi hvoru megin.
Hitakerfi: Íbúðir og sameign eru upphituð með gólfhitakerfi skv. teikningum lagna hönnuða, Rafrænt loftræstikerfi með útsogi er í gluggalausum rýmum. Á viðeigandi stöðum á útveggjum eru lofttúður með innbyggðri hljóð og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um ákveðin svæði. Forhitari er á heitu neysluvatni.
Rafmagn: Rofar og tenglar eru hvítir. Rafmagns og sjónvarpslögn er frágengin ásamt tölvutenglum í herbergjum. Mynddyrasími fylgir hverri íbúð. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld ljós verða í opnum rýmum í íbúðunum, og þeim skilað fullfrágengnum. Kúplar eru í þvottahúsi baðherbergi og geymslu
Gluggar og útihurðir: Gluggar og svalahurðir eru frá Byko Ál / tré . Opnanleg fög og svalahurðir eru með eru með opnunarstillingu til loftunar. Útihurðir/Aðalhurðir eru úr áli rmeð opnunarbúnaði. Allt gler er K-gler eða sambærilegt skv. Byggingareglugerð. Með glerinu fylgir sú ábyrgð sem framleiðandi glersins veitir.
Bílageymsla: Sjálfstæð bílageymsla er við húsið. Veggir að innanverðu verða slípaðir og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi verða frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað með góðum afrennslishalla. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílageymslu er frá Héðni, frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöðvum fyrir rafbíla við hvert stæði. Bílageymsla er loftræst og lítilsháttar upphituð, ca 10°C. Í bílageymslu eru 9 bílastæði.
Bílastæði og möguleiki á rafhleðslu: Bílastæði eru samtals 30. 9 bílastæði í bílageymslunni og 21 á bílaplani við húsið. Gert er ráð fyrir rafhleðslustaur við eitt stæði utanhúss en auk þess möguleiki á rafhleðslu við öll önnur bílastæði jafnt innan – sem utanhúss. Bílastæði verða lögð gegndræpu yfirborði en gönguleiðir og aðkoma við inngang verður hellulagt.
Lóð: Lóðarfrágangur í samræmi við lóðaruppdrátt , umhverfi hússins verður að mestu þakið grasi og mó-/lyngtorfi ásamt gróðurbeðum fyrir trjágróður og plöntur.
Söluaðilar: Bogi Molby Pétursson löggiltur fasteignasali. Lind fasteignasala
Aðalhönnuður : Rýma arkitektar, Gunnar Páll Kristinsson arkitekt
Burðarvirki og lagnir : Verkfræðistofan Víðsjá
Raflagnahönnun : Sturla Snorrason rafverktaki.
Húsbyggjandi og Aðalverktaki : Bergmót ehf.
Seljendur/Kaupendur mínir fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og vodafone. Hentugt þegar keypt er nýbygging!