Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, s. 863-8813, og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegt 261,8 m² raðhús á tveimur hæðum við Vorbraut 57 í suðurhlíð Hnoðraholts í Garðabæ.
Húsið er í fremstu röð við golfvöll GKG og af 15,5 m² svölum er stórkostlegt útsýni yfir golfvöllinn, Vífilsstaðavatn og í átt að Heiðmörk.Húsið er með glæsilegri hjónasvítu með fataherbergi og sérbaðherbergi, öðru baðherbergi, gestasalerni og 25,5 m² innangengum bílskúr. Við innganginn er forgarður með síðdegis- og kvöldsól.
Nánari upplýsingar veita Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða á elka@fstorg.is og Guðný Ösp, löggiltur fasteignasali, í síma 665-8909 eða á gudny@fstorg.is.Nánari lýsing
Efri hæð. Gengið er inn í forstofu og þaðan er innangengt í bílskúr.
Á hæðinni er rúmgott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhúsið er með eyju og stórir gluggar í stofu hleypa inn birtu og ramma inn útsýnið yfir golfvöllinn og vatnið.
Útgengt er úr alrýminu á stórar svalir. Á hæðinni er einnig herbergi sem hentar vel sem svefnherbergi eða vinnuherbergi, ásamt gestasalerni.
Neðri hæð. Þar er rúmgóð hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi. Á hæðinni er einnig annað svefnherbergi, rými sem má nýta sem sjónvarpsherbergi eða útbúa sem viðbótarsvefnherbergi, annað baðherbergi, sérþvottahús og tæknirými.
Samkvæmt fasteignayfirliti er birt stærð eignarinnar 261,8 m². að meðtöldu 25 m² tæknirými, og 25,5 m² sem bílskúr. Svalir eru 15,5 m².
Vorbraut 57 er eitt fimm raðhúsa sem FORMER arkitektar hönnuðu með sólarátt, birtu og útsýni í huga. Húsið afhendist samkvæmt skilalýsingu með vönduðum innréttingum frá Ballingslöv, eldhústækjum frá Siemens, fullbúnum baðherbergjum, innihurðum og skápum. Gólfefni fylgja í votrýmum og bílskúr.
Lóðin er frágengin að framan og grófjöfnuð að öðru leyti. Hellulögn með snjóbræðslu er á forgarði, bílaplani og gönguleið að inngangi. Aukabílastæði er lagt grassteini.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum frá BM Vallá. Útveggir eru með sléttri, málaðri steypuáferð og að hluta klæddir hitameðhöndluðu timbri. Gluggar eru úr timbri með álklæðningu að utan, rennihurðir út á svalir eru úr áli og gler er sólvarnargler.
Áætluð afhending er vor eða sumar 2027.
Í Hnoðraholti er stutt í útivist við Vífilsstaðavatn og í Heiðmörk, golfvelli GKG og íþróttahúsið Miðgarð. Skólar, leikskólar, verslanir og önnur þjónusta Garðabæjar eru í næsta nágrenni.
Grunnteikningar og nánari upplýsingar um verkefnið má finna á
https://vorbraut53-61.is/Nánari upplýsingar veita Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða á elka@fstorg.is og Guðný Ösp, löggiltur fasteignasali, í síma 665-8909 eða á gudny@fstorg.is.