Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Víðihlíð 33, Sauðárkróki, ásamt tilheyrandi lóðaleiguréttindum. Bjart og vel skipulagt, steypt einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr, alls. 183,6 fm. Íbúðin er skráð 135 fm og bílskúrinn 48,6 fm. Húsið er byggt árið 1975. Leigulóð hússins er 972 fm. Fasteignin er vel staðsett og með útsýni til austurs. Stutt er í góðar gönguleiðir og náttúru.
Fasteignin skiptist í fjögur herbergi, stofu, eldhús, snyrtingu, baðherbergi, þvottahús, tvær geymslur og bílskúr. Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með fataskápum. Við forstofu er snyrting og tvö dúkalögð herbergi með skápum. Stofa er rúmgóð og björt. Parket á gólfi og gluggar til austurs. Svalahurð út í garð frá stofu á steypta verönd. Eldhús er með upprunalegri viðarinnréttingu og ljósri borðplötu. Flísar eru á vegg milli efri og neðri skápa. Dúkur á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús með máluðu gólfi, þar er einnig búr og geymsla. Útihurð frá þvottahúsi í garð að sunnan. Innrétting við vask í þvottahúsi. Rúmgott baðherbergi er með dúk á gólfi, hvítri innréttingu við vask og walk-in sturtu með flísalögðum botni. Tvö herbergi eru við stofu sem bæði eru parketlögð.
Bílskúr er steyptur og rúmgóður. Gryfja er í bílskúr. Eftir er að klára að klæða bílskúrinn að innan. Lóðin er vel gróin og snyrtileg. Bílaplan er malarborið. Við útihurðir eru steyptar stéttir. Timburpallur í garði sunnan við húsið. Austan við húsið er leikvöllur og grænt svæði sunnan við það.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.