Melgata 13 - 6-7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum á fallegri útsýnislóð á Grenivík - stærð 184,0 m²
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, Efri hæð 134,0 m²: Forstofa, gangur, eldhús, stofa og borðstofa í alrými, baðherbergi og fimm svefnherbergi. Neðri hæð 50 m²: Bakinngangur, þvottahús og tvær geymslur.
Forstofa er með flísum á gólfi, gólfhita, stórum spónlögðum eikar skáp og nýrri (2026) útidyrahurð. Úr forstofu er gengið inn á flísalagðan gang sem liggur eftir endilöngu húsinu. Af ganginum er gengið inn í öll helstu rýmin á hæðinni. Eldhús var endurnýjað árið 2022. Sérsmíðuð plastlögð ljósbrún innrétting með viðar áferð og dökkgrárri bekkplötu og höldum. Mjög gott- skúffu og bekkjarpláss. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Borðkrókur með gluggum til tveggja átta. Vínyl parket er á gólfi. Úr eldhúsi er gengið niður á neðri hæðina um steyptan og lakkaðan stiga. Stofa og borðstofa eru í rúmgóðu alrými þar sem dökkt parket er á gólfum, gólfhiti og stórir gluggar til tveggja átta. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með ljósri sprautulakkaðri innréttingu, wc, sturtu og opnanlegum glugga. Svefnherbergin eru fimm, þrjú ágætlega rúmgóð og tvö minni. Dúkur og parketi eru á gólfum og fataskápar eru í fjórum þeirra. Hurð er á milli tveggja minni herbergjanna. Bakinngangur er með lökkuðu gólfi og þaðan liggur steyptur og lakkaður stigi upp í eldhús. Þvottahús er við hliðina á bakinngangi með lökkuðu gólfi, eldri viðarinnréttingu með skolvaska og opnanlegum glugga. Tvær geymslur eru inn af þvottahúsinu, báðar með litlum opnanlegum gluggum. Möguleiki væri að nýta aðra þeirra sem sjötta svefnherbergið.
Annað * Byggð var við húsið 54 m² viðbygging sem er í dag forstofa, svefnherbergi, stofa og borðstofa. Gólfhiti er í öllum þessum rýmum. * Búið er að einangra húsið að stærstum hluta að utan. * Húsið stendur hátt og er skemmtilegt útsýni út fjörðinn, að Kaldbak og inn sveitina. * Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Að hluta til endurnýjað, úr kjallara og út í brunn, annars þarfnast það skoðunar, hefur stíflast nokkrum sinnum.
Gluggar / Gler
Búið er að endurnýja hluta af gleri. Móða er á milli í einhverjum og gluggar í kjallara þarfnast endurnýjunar
Þak
Upprunalegt, timburklæðning á stafni þarfnast skoðunar. Þakniðurföll eru ótengd.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Gallar
* Útfellingar eru á veggjum í kjallara og í svefnherbergi við hliðinan á forstofu. * Skemmdir eru í múrklæðningu að utan á nokkrum stöðum. * Frárennsli hefuu stíflast nokkrum sinnum. * Ekki er full lofthæð í kjallaranum. * Gluggi í einu barnaherberginu er skemmdur og sólbekk vantar.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Melgata 13 - 6-7 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum á fallegri útsýnislóð á Grenivík - stærð 184,0 m²
Eignin skiptist með eftirtöldum hætti, Efri hæð 134,0 m²: Forstofa, gangur, eldhús, stofa og borðstofa í alrými, baðherbergi og fimm svefnherbergi. Neðri hæð 50 m²: Bakinngangur, þvottahús og tvær geymslur.
Forstofa er með flísum á gólfi, gólfhita, stórum spónlögðum eikar skáp og nýrri (2026) útidyrahurð. Úr forstofu er gengið inn á flísalagðan gang sem liggur eftir endilöngu húsinu. Af ganginum er gengið inn í öll helstu rýmin á hæðinni. Eldhús var endurnýjað árið 2022. Sérsmíðuð plastlögð ljósbrún innrétting með viðar áferð og dökkgrárri bekkplötu og höldum. Mjög gott- skúffu og bekkjarpláss. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Borðkrókur með gluggum til tveggja átta. Vínyl parket er á gólfi. Úr eldhúsi er gengið niður á neðri hæðina um steyptan og lakkaðan stiga. Stofa og borðstofa eru í rúmgóðu alrými þar sem dökkt parket er á gólfum, gólfhiti og stórir gluggar til tveggja átta. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með ljósri sprautulakkaðri innréttingu, wc, sturtu og opnanlegum glugga. Svefnherbergin eru fimm, þrjú ágætlega rúmgóð og tvö minni. Dúkur og parketi eru á gólfum og fataskápar eru í fjórum þeirra. Hurð er á milli tveggja minni herbergjanna. Bakinngangur er með lökkuðu gólfi og þaðan liggur steyptur og lakkaður stigi upp í eldhús. Þvottahús er við hliðina á bakinngangi með lökkuðu gólfi, eldri viðarinnréttingu með skolvaska og opnanlegum glugga. Tvær geymslur eru inn af þvottahúsinu, báðar með litlum opnanlegum gluggum. Möguleiki væri að nýta aðra þeirra sem sjötta svefnherbergið.
Annað * Byggð var við húsið 54 m² viðbygging sem er í dag forstofa, svefnherbergi, stofa og borðstofa. Gólfhiti er í öllum þessum rýmum. * Búið er að einangra húsið að stærstum hluta að utan. * Húsið stendur hátt og er skemmtilegt útsýni út fjörðinn, að Kaldbak og inn sveitina. * Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.