Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2026

Skólastígur 32

HæðVesturland/Stykkishólmur-340
207.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Brunabótamat
98.350.000 kr.
Byggt 1969
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
21162021
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Aldir Fasteignir og Erla Friðriksdóttir, löggiltur fasteignasali, erla@aldirfasteignir.is, 8966160 kynna:
Bjarta og rúmgóða efri sérhæð við Skólastíg 32 með fjórum til fimm svefnherbergjum, tvöföldum bílskúr, fallegu útsýni og skjólgóðum sólpalli.
Um er að ræða bjarta og rúmgóða 207,3 fm eign á efri hæð í tvíbýlishúsi á góðum stað í Stykkishólmi. Eigninni fylgir sérstæður, tvöfaldur 53,2 fm bílskúr og er íbúðarrýmið 154,1 fm.

Eignin býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir fjölskyldufólk, fjögur svefnherbergi með möguleika á því fimmta. Rúmgóð og björt stofa, fallegt útsýni, suðvestursvalir og skjólgóður sólpallur.
Húsið stendur á 771 fm gróinni hornlóð og hefur efri hæðin sérafnot af norðurhluta lóðarinnar samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.
Staðsetningin er góð, í grónu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug, verslanir og aðra þjónustu.

Nánari lýsing eignar
Forstofa: Rúmgóð og flísalögð forstofa.
Eldhús: Eldhús með eldri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi og borðkrókur.
Stofa og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými í góðu flæði við eldhús. Stórir gluggar hleypa inn ríkulegri dagsbirtu og njóta má fallegs útsýnis. Parket á gólfum.
Hol: Flísalagt hol með útgengi á litlar svalir til suðvesturs með fallegu útsýni m.a til fjalla.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru fjögur, þar af eitt með fataskápum. Eitt herbergjanna var áður tvö aðskilin herbergi og því möguleiki á að breyta því aftur og útbúa fimmta svefnherbergið. Gólfefni eru parket, flísar og dúkur.
Baðherbergi: Flísalagt og hefur verið endurnýjað að hluta. Baðkar með sturtu, innrétting með handlaug og góðu skápaplássi, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús: Þvottahús með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er útgengt á skjólgóðan sólpall. Þvottasnúrur eru á lóð.
Geymsla: Geymslurými með hillum og parketi á gólfi.
Bílskúr: Tvöfaldur bílskúr, alls 53,2 fm, með tveimur innkeyrsluhurðum, þar af annarri rafdrifinni. Bílskúrnum hefur verið skipt upp í tvö rými og býður hann upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Fyrir framan bílskúrinn eru tvö bílastæði.

Lóð og útisvæði
Húsið stendur á stórri og gróinni 771 fm hornlóð með fjölbreyttum trjágróðri, meðal annars birki, víði reyni, selju og rósarunna. Eigninni fylgir sérafnotaréttur að norðurhluta lóðarinnar samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu. Á lóðinni er skjólgóður timburpallur með háum skjólveggjum og aðgengi að garðinum. Hellulagðir göngustígar eru við húsið og malarborið bílaplan við bílskúrinn.

Viðhald og endurbætur
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda hefur verið ráðist í ýmsar endurbætur og viðhald á undanförnum árum, meðal annars:
Gluggar hafa verið endurnýjaðir að hluta. Þeir gluggar sem eftir er að endurnýja hafa verið keyptir.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað að hluta.
Húsið hefur verið málað í áföngum árin 2021 og 2025.
Dren hefur verið lagt undir sólpall.
Frárennsli hefur verið endurnýjað frá baðherbergi út í götu.
Þakdúkur hefur fengið reglubundna skoðun.
Rafmagn endurnýjað að milku leyti.

Eftirfarandi endurbætur voru framkvæmdar af fyrri eiganda sem núverandi eigandi getur ekki staðfest:
Hluti innihurða og ofna endurnýjaðir.
Frárennslislagnir settar í plast.

Helstu kostir eignarinnar
207,3 fm heildarstærð, þar af 53,2 fm tvöfaldur bílskúr.
Fjögur til fimm svefnherbergi og sveigjanlegt innra skipulag.
Björt og rúmgóð stofa með stórum gluggum og fallegu útsýni.
Skjólgóður sólpallur með aðgengi að grónum garði.
Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla, íþróttaaðstöðu, golfvöll og alla helstu þjónustu.

Skólastígur 32 er áhugaverð fjölskyldueign með rúmgóðri aðstöðu, góðum bílskúr og miklum möguleikum.
Eign sem vert er að skoða!

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbær 192
Efsta hæð
Skoða eignina Hraunbær 192
Hraunbær 192
110 Reykjavík
88 m2
Fjölbýlishús
312
681 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 10
Efsta hæð
Opið hús:20. okt. kl 17:30-18:00
Hlíðarhjalli 10
200 Kópavogur
93,2 m2
Fjölbýlishús
413
836 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 3, Íbúð 301
Opið hús:18. okt. kl 17:00-17:30
Grásteinsmýri 3, Íbúð 301
225 Garðabær
105,8 m2
Fjölbýlishús
413
888 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 3, Íbúð 304
Opið hús:18. okt. kl 17:00-17:30
Grásteinsmýri 3, Íbúð 304
225 Garðabær
63,7 m2
Fjölbýlishús
211
1066 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin