Fasteignaleitin
Skráð 12. ágúst 2026

Þrastahólar 9

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
89.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
61.900.000 kr.
Fermetraverð
693.169 kr./m2
Brunabótamat
57.600.000 kr.
Byggt 2008
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
23154671
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:
Um er að ræða vel skipulagðan 89.3 fm sumarbústað á frábærum útsýnisstað við Þrastarhóla í landi Búrfells, eignin stendur á eignarlóð.
Miklar verandir eru í kringum húsið og er lóðin vel gróin, gott aðgengi að húsi og næg bílastæði.
Aka þarf um öryggishlið til þess að komast inn á sumarbústaðasvæðið og er hitaveita á svæðinu.
Mikil lofthæð er í húsinu og er innbyggð lýsing í loftum.
Húseign getur fengist afhent nokkuð fljótt og þá er möguleiki á að kaupa með stóran hluta af búslóð sem er til staðar í húsi í dag.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Aðalhús er 74.1 fm merkt 01-01-01 og gesthús er 15.2 fm merkt 02-01-01, samtals 89.3 fm.
Eignarlóðin er 7762 fm.
Greitt er í sumarhúsafélag árlega og er það gjald kr. 15.000.- á ári.


Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Aðalhús er forstofa, alrými sem að er stofa, borðstofa og eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla/þvottahús.
Í gesthús er svefnherbergi með baðherbergi innaf. 

Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í forstofu og er innbyggður fataskápur í forstofu.
Hol/gangur þangað sem að gengið er í önnur rými hússins.
Stofa/borðstofa og eldhús eru í opnu alrými með gluggum á þrjá vegu, útgengi úr stofurými til suðurs úr stofu.
Eldhús er með snyrtilegri innréttingu með efri og neðri skápum, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og einföldum ísskáp.
Tvö góð svefnherbergi og eru fataskápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, ágætis innrétting með skúffum undir vask, upphengt salerni, sturtuklefi, útgengt úr baðherbergi út á verönd.
Við aðalinngang í hús er geymla og þvottaherbergi.
Gesthús er á verönd hússins og þar er gott svefnherbergi og baðherbergi með selerni og sturtuklefa.
Heitur pottur (hitaveituskel) er á verönd og þar við er útisturta.
Gólfefni: Flísar á gólfum eignar.

 
Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu, heitum potti og útisturtu.
Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.
Þetta er fallegt og vel um gengið sumarhús sem að stendur á frábærum útsýnisstað.
Góð aðkoma og næg bílastæði og þá er búið ða leggja ljósleiðara í húsið.

Sumarhúsasvæðið er í ca. 50 mín aksturfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Stutt er í mikla afþreyingu í nágrenninu veiði, sundlaug, golfvelli (Öndverðarnes, Kiðjaberg, Dalbúi, Úthlíðarvöllur) og fallegar gönguleiðir.
Stutt er á Selfoss í alla þjónustu.


-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kerhraun 61
Heitur pottur
Skoða eignina Kerhraun 61
Kerhraun 61
805 Selfoss
161.9 m2
Sumarhús
626
Fasteignamat 70.650.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hnjúkamói 14 íb. 405
Hnjúkamói 14 íb. 405
815 Þorlákshöfn
94.6 m2
Fjölbýlishús
43
697 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
Bílskúr
Á einni hæð
Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
815 Þorlákshöfn
113.5 m2
Raðhús
312
568 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 20, íbúð 0305
Efsta hæð
Hleðslustöð
Sambyggð 20, íbúð 0305
815 Þorlákshöfn
105.9 m2
Fjölbýlishús
413
679 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin