Kasa fasteignir 461-2010.
Brekkugata 23, íbúð 201 - Falleg og mikið uppgerð 108,10 fm íbúð í virðulegu þriggja íbúða húsi sem hefur fengið mikið og gott viðhald í gegnum árin.
Gott útsýni er úr eigninni, en húsið er á frábærum stað, rétt við miðbæ Akureyrar.
Húsið hefur gengið í gegnum miklar endurbætur í gegnum árin, en m.a. er búið er að endurnýja þak, þakrennur og niðurföll, hitakerfi, ofna og frárennslis- og neysluvatnslagnir.
Íbúðin hefur verið gerð upp að mestu leiti en þar má nefna innréttingar, hurðar, tæki og fleira.
** Miðhæð og efstahæð eru í eigu sömu aðila og eru báðar íbúðirnar til sölu **
Eignin skiptist í forstofu, hol, 2 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús og geymslu. Einnig fylgir eigninni bílastæði og afnot af verönd.
Gengið er inn í forstofu um aðalinngang hússins á jarðhæð og þaðan liggur teppalagður stigi upp í íbúðina.
Holið er með parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfum og fataskápum. Úr báðum herbergjunum er gott útsýni til Austurs.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Þar er hiti í gólfum, sturta, ljós innrétting, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Eldhús er með flísum á gólfi. Þar er hvít innrétting með plássi fyrir uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð. Í eldhúsinu er einnig eldhúseyja með helluborði og góðu skúffuplássi.
Borðstofa er með parketi á gólfi.
Stofa með góðu útsýni er inn af borðstofu. Hægt er að loka á milli rýmanna með vængjahurð.
Þvottahús og sér-geymsla fyrir íbúðina eru í sameign í kjallara.
Rúmgóð Verönd er vestan við húsið og er hún til sérafnota tveggja íbúða í húsinu.
Eigninni fylgir bílastæði á steyptu bílaplani með snjóbræðslukerfi vestan við húsið.
- Frábær staðsetning rétt við miðbæ Akureyrar
- Þak hússins var endurnýjað árið 2021
- Steypt bílaplan vestan við húsið og gangstétt að norðanverðu var endurgert árið 2025 og snjóbræðslu komið fyrir
- Árið 2025 var grafið frá húsinu að vestan og norðan og drenlögnum komið fyrir
- Verönd vestan við húsið var stækkuð og endurnýjuð árið 2024
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.