Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu: Selvogsbraut 3, Þorlákshöfn. Stórglæsilegt endaraðhús með 2 stórum svefnherbergjum ásamt bílskúr, stórri verönd með góðum skjólveggjum, nýlegu gróðurhúsi og nýjum heitum potti. Upp tekin loft eru í öllu húsinu.
Húsið er úr forsteyptum einingum, steinuðum með blágrýti.
** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **
Eignin telur:
* Mjög góða, flísalagða forstofu með stórum sérsmíðuðum skáp. Úr forstofunni er innangengt í bílskúrinn.
* Stofa og eldhús eru í opnu rými.
* Eldhúsið er afar fallegt, með sérsmíðaðri innréttingu með skrautskáp sem snýr inn í stofuna og lokar þannig vinnurými eldhússins frá stofunni.
* Glæsilega stofu með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Fallegur útskotsgluggi setur sjarmerandi svip á rýmið.
* Utangengt er úr stofu/eldhúsi á stóra verönd með gróðurhúsi og heitum potti.
* Mjög rúmgott sjónvarpshol.
* 2 stór svefnherbergi. Góðir fataskápar í báðum herbergjum og harðparket á gólf. Úr hjónaherbergi er utangengt á verönd.
* Fallegt baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu og sturtu úr glerþili. Flísar á gólfi og veggjum.
* Gott þvottahús með innréttingu með skolvask og vinnuborði. Utangengt er úr þvottahúsinu.
* Eins flísar eru á öllum gólfum, nema svefnherbergjum.
* Góður bílskúr með flísum á gólfi. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs.
* Góð, flísalögð, geymsla er í enda bílskúrsins. Geymsluloft er einnig yfir geymslunni.
* Lóðin er að mestu stór verönd með góðum skjólveggjum og nýjum, heitum potti.
* Á verönd er nýlegt gróðurhús úr gleri með opnanlegum þakgluggum. Gróðurhúsið er hitað með rafmagnshiturum og er nýtt sem kósý setustofa.
* Bílaplanið er hellulagt og rúmar vel 2-3 bíla.
FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !
Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/
Sími 483 3424
Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:
Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Super 1 pizza (facebook: super 1 pizza)
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is