Miklaborg kynnir: Glæsileg og björt 3ja herbergja þakíbúð með sérinngangi, tvennum svölum og stórbrotnu útsýni við Ásbraut í Kópavogi.
Eignin er á efstu hæð í litlu, þriggja íbúða húsi við rólega botnlangagötu í grónu og fjölskylduvænu hverfi. Íbúðin nýtur sín einstaklega vel með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni til vesturs og norðurs. Stórar, hellulagðar svalir setja svo sannarlega punktinn yfir i-ið.
Íbúðin skiptist í forstofu, glæsilegt alrými með stofu og eldhúsi, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla eru í sameign.
Nánari upplýsingar : íris Arna Lgf S:770500 eða iris@miklaborg.is. Böddi Lgf S:8216300 eða boddi@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu með góðum fataskápum.
Stofa og alrými: Bjart og einstaklega fallegt alrými með parketi, aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Héðan nýtur fallegs útsýnis til vesturs og norðurs.
Eldhús: Glæsilegt og vel skipulagt eldhús með vandaðri, sérsmíðaðri HTH-innréttingu frá Ormsson og stórri eldhúseyju. Vönduð AEG-eldhústæki, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Parket er á gólfi og eldhúsið tengist stofu og borðstofu á fallegan hátt.
Svalir: Úr alrýminu er gengið út á stórar, um 53 fm hellulagðar svalir með glerhandriði. Hér skapast frábær aðstaða fyrir útiveru, grill og notalegar stundir með fjölskyldu og vinum. Íbúðin er með tvennar svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með parketi og góðum fataskápum. Útgengt er úr hjónaherberginu út á svalir.
Svefnherbergi: Gott herbergi með parketi og fataskápum.
Baðherbergi: Rúmgott og snyrtilegt, flísalagt í hólf og gólf, með fallegri innréttingu, sturtuklefa og baðkari.
Þvottahús: Sérstakt þvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi og góðri innréttingu.
Geymslur: Sérgeymsla fylgir íbúðinni og sameiginleg hjólageymsla er í húsinu.
Hér er um að ræða einstaklega fallega og bjarta þakíbúð með miklum gluggum, aukinni lofthæð, sérinngangi og stórum svölum. Verslun og þjónusta eru í göngufæri ásamt fallegum göngu- og útivistarleiðum.
Eign sem vert er að skoða!
Nánari upplýsingar : íris Arna Lgf S:770500 eða iris@miklaborg.is. Böddi Lgf S:8216300 eða boddi@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 14/03/2022 | 82.000.000 kr. | 105.000.000 kr. | 147 m2 | 714.285 kr. | Já |
| 31/10/2020 | 70.750.000 kr. | 86.400.000 kr. | 147 m2 | 587.755 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 147 | 129 | ||
210 | 146,2 | 121,9 | ||
260 | 139,5 | 91,9 | ||
200 | 73,6 | 67,9 | ||
210 | 158 | 137,9 | ||
200 | 60,5 | 59,9 |