Valhöll og Sölvi Þór Sævarsson lgfs, kynna í einkasölu: Snyrtilega 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í litlu fjölbýlishúsi á besta stað í miðborginni við Ljósvallagötu 30 í 101 Reykjavík
Göngufæri er í alla helstu þjónustu, skóla og Háskóla. Inngangur að íbúð er frá skjólgóðum bakgarði.
Eignin er í heild skráð 74,4 m² skv. Hms, þar af er 8,1 m² geymsla. Einnig er sameiginleg hjóla- /vagnageymsla á lóð í garði.
Fasteignamat 2026 er 64.250.000.- Byggingarár er 1948.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, hjónaherbergi ásamt öðru herbergi inn af stofurými. Geymsla með glugga í sameign, þar sem einnig er rými fyrir þvottavél. Einnig er góð stór sameiginleg geymsla á lóð fyrir hjól og vagna.
Allar nánari uppl. veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 / solvi@valholl.is
Nánari lýsing:
Anddyri – Flísar á gólfi, fatahengi. Gluggi út í garð í anddyri.
Eldhús – Hvít innrétting með góðu skápaplássi, efri skápar og flísar á milli efri og neðri skápa. Lítil borðkrókur, flísar á gólfi.
Baðherbergi - Ljósar flísar á veggjum og gólfi. Sturturými með flísum á vegg. Handlaug á vegg, speglaskápur fyrir ofan handlaug og annar skápur til hliðar.
Hjónaherbergi – Ágætlega rúmgott, hvítir fataskápar og flísar á gólfi.
Gangur að stofu og aukaherbergi með flísum á gólfi.
Stofa/ miðrými – Íbúðar er í dag nýtt sem borðstofa/skrifstofurými, flísar á gólfi.
Herbergi – Inn af miðrými er rúmgott svefnherbergi sem í dag er nýtt sem stofurými með fataskáp og flísum á gólfi.
Eign 00-01 Fastanúmer 200-4195. 0006. Eignin er 66,3 m² íbúð í kjallara auðkenni 0001, og 8,1 m² geymsla í kjallara auðkenni Íbúðin er 1 stofa, 2 herbergi, eldhús, bað, gangur og anddyri.
Auk þess tilheyrir eigninni hlutdeild í sameign allra í húsi og lóð. Birt stærð séreignar í matshluta 01 er 74,4 m².
Næsta umhverfi: Örstutt í Háskóla Íslands verslun og þjónusta í næsta nágrenni Stutt í leikskóla, skóla, verslanir og iðandi mannlíf miðbæjarins.
Upplýsingar frá eigendum með framkvæmdir síðustu ára.
- Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu fyrir c.a 6-8 árum síðan.
- Óháður aðili var fenginn fyrir skemmstu til að taka út ástand hús þaksins. Sú úttekt segir að húsþakið er í góðu standi.
- Drenað og skipt um skólp frá húsi og út í götu sumarið 2024. Aðrar lagnir hafa verið myndaðar og virka í góðu standi að sögn eigenda.
- Íbúð 00-01 á 20% hlutdeild í geymsluskúr á lóð.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is
– eða skrifstofa / s.588-4477 / valholl@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.