Opið hús:15. feb. kl 15:00-16:00
Skráð 12. feb. 2026

Þorraholt 13D (115)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
79.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.900.000 kr.
Fermetraverð
952.321 kr./m2
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
8658112_2
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
15
Vatnslagnir
Nýjar
Raflagnir
Nýjar
Frárennslislagnir
Nýjar
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
--- Glæsileg 2ja herbergja íbúð við Þorraholt 13D í Garðabæ með bílastæði í bílakjallara, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, og rúmgóðum sérafnotareiti til suðurs ---

Skoða verkefnið nánar á hlekk: www.thorraholtid.is Upplýsingar gefur: Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Þorraholt 13D í Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 3ja herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu á jarðhæð. 

Íbúð 115: Er glæsileg 79,7 fermetra 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með sérafnotareit til suðurs og sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara. Góð geymsla fylgir íbúðinni sem er 14,0 fermetrar að stærð. Afhending er í mars-apríl 2026 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með eyju sem er opið við stofu/borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Útgengt á sérafnotareit frá stofu.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir og klæddir að utan sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.thorraholtid.is

Þorraholt stendur á einstökum stað í Garðabæ – í grónu og friðsælu umhverfi þar sem náttúra og þægindi borgarlífs fara saman. Hér eru fjölbreytt útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir rétt við heimilið, auk þess sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu. Garðabær er þekktur fyrir öflugt samfélag, góðar samgöngur og fjölbreytt tækifæri til íþrótta, menningar og útivistar – allt sem þarf fyrir virkt og innihaldsríkt daglegt líf.

Svæðið í kringum Þorraholt býður upp á jafnvægi milli rólegrar náttúru og nálægðar við líflega miðju höfuðborgarsvæðisins. Hér getur þú notið kyrrðarinnar heima fyrir og verið samt aðeins örfáum mínútum frá vinnu, verslun og afþreyingu. Það gerir Þorraholt að kjörnum stað fyrir þá sem vilja bæði lífsgæði og þægindi í senn.

ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum. 

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Innréttingar:
Í eldhúsum og baðherbergjum eru Nobilia innréttingar frá GKS. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Siemens. Íbúðum er skilað með spanhelluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál (Laufen) er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru hitastýrð frá Damixa. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
8658112_2
Byggingarefni
Steypt
Fasteignamat samtals
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 2
Bílastæði
Opið hús:15. feb. kl 14:00-15:00
Skoða eignina Vetrarbraut 2
Vetrarbraut 2
210 Garðabær
73.9 m2
Fjölbýlishús
312
1027 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 53
Skoða eignina Holtsvegur 53
Holtsvegur 53
210 Garðabær
89.9 m2
Fjölbýlishús
312
867 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 - íbúð 107
Opið hús:15. feb. kl 13:00-13:30
Eskiás 10 - íbúð 107
210 Garðabær
66.4 m2
Fjölbýlishús
312
1098 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 - íbúð 210
Opið hús:15. feb. kl 13:00-13:30
Eskiás 10 - íbúð 210
210 Garðabær
64.8 m2
Fjölbýlishús
312
1125 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin