RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt fjögurra herbergja eign 99,8 fm. að stærð á 4. hæð í nýlegu lyftuhúsi með bílastæði í lokaðri bílgeymslu. Íbúðin er 91,9 fm. og telur forstofu, eldhús opið til borðstofu og stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla er staðsett í sameign um 7,9 fm. að stærð.
* Vandaðar innréttingar og gólfefni
* Myndavéladyrasími
* Bílastæði í bílgeymslu, vel staðsett
* Öll helsta þjónusta í þægilegu göngufæri, m.a. heilsugæsla, hárgreiðslustofa og kaffihús
KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉREfstaleitið er nútímalegt íbúðahverfi á einum besta stað í borginni. Sannkallað miðborgarhverfi í göngufæri við helstu verslunar- og þjónustukjarna borgarinnar og falleg útivistarsvæði. Kaffihús, hárgreiðslustofa, heilsugæsla og ýmis þjónusta í göngufæri.Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is
Nánari lýsing: Litir og samsetningar innréttinga og flísa voru valdar af Rut Káradóttur innanhússarkitekt. Innréttingar eru hannaðar af GKS og smíðaðar af Nobilia í Þýskalandi. Harðparket frá Harðviðarval.Forstofa er með góðum fataskápum og þaðan gengið inn í helstu vistarverur íbúðar.
Eldhús er í björtu og opnu alrými við
borðstofu og stofu. Eldhúsinnrétting er með góðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Stór e
ldhúseyja með helluborði og gufugleypi. Úr stofu er útgengt út á 9,5 fm.
svalir.Svefnherbergin eru þrjú, öll með fataskápum. Hjónaherbergi er mjög rúmgott.
Ath. svefnherbergi við stofu - einfalt er að taka niður létta veggi og stækka stofuna enn frekar.Baðherbergi er með stílhreinum innréttingum og
vönduðum Marazzi flísum á gólfi og vegg að hluta.
Sturta með glerþili, upphengt salerni og handklæðaofn.
Innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er staðsett í sameign um
7,9 fm. að stærð ásamt
hjóla- og vagnageymslu.
Garður er fallegur og skjólsæll. Góð aðstaða með reiðhjólaskýlum, leiksvæði og hreyfistöð. Kaffihús er staðsett á jarðhæð við Efstaleiti 25 með skemmtilegu útisvæði.
Bílastæði íbúðar í bílgeymslu, er merkt 06-B039
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.