M2 Fasteignasala kynnir eignina Suðurgata 4, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 02-03, fastanúmer 209-0633 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Suðurgata 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-0633, birt stærð 68.3 fm.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður Lgfs í síma 693-2080, Þröstur Lgfs 891-9787 eða á netfanginu fermetri@fermetri.is
Mjög góð og snyrtileg 2. herbergja íbúð á 1. hæð að Suðurgötu 4a, Kef.
Svalir sem snúa í suður.
Sérmerkt bílastæð við inngang.
Góð sameign, aðilda að sal.
Húsið er fyrir 55 ára og eldri.
Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri og hol, parket á gólfi, fataskápur.
Stofa og eldhús er í opnu rými, parket á gólfum, útgengt úr stofu útá svalir sem snúa í suður/vestur.
Svefnherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, innrétting, sturta.
Þvottaherbergi, málað gólf.
Sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni.
Sameiginlegur salur er á 4. hæð að Suðurgötu 8 sem íbúar hafa aðgang að.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.