Stuðlaberg Fasteignasala kynnir glæsilega 4ra herbergja 144,4 fm endaíbúð á jarðhæð í Hlíðarhverfi við Grænulaut 10 í Reykjanesbæ.
Íbúðin er 144,4fm þar af 5,3fm sérgeymsla á fyrstu hæð og hefur hún um 70fm sólpall í suð-vestur.Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgott eldhús með eyju, stofu og borðstofu.
Forstofa hefur flísar á gólfi og fataskáp.
Stofa hefur parket á gólfi og hurð út á um 70fm verönd í suð-vestur.
Eldhús hefur góða innréttingu og eyju. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél ásamt spanhelluborði og tveimur ofnum með blæstri.
Þvottahús er flísalagt. Hvít innrétting með vaski og gott skápapláss þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru þrjú og rúmgóð með skápum í öllum herbergjum og parket á gólfi. Auðvelt er að bæta við fjórða svefnherberginu.
Baðherbergið hefur flísar á gólfi og veggir flísalagðir að hluta. Hvít innrétting með handlaug ásamt handklæðaofni. Upphengt salerni ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri.
Geymsla er 5,3 fm á 1.hæð í sameign.
*Hiti í innkeyrslu og í stétt við inngang
*Þvottahús er í íbúðinni
*Göngufæri frá Holtaskóla, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sundmiðstöð, íþróttahúsi og verslunarkjarna
*Góð afgirt verönd er út frá stofu, hluti verandar er lokuð.
Allar nánari upplýsingar veita:
Haraldur Guðmundsson Lögg. fasteignasali
S. 661-9391 / 420-4000 - halli@studlaberg.is
Guðlaugur H.Guðlaugsson Lögg. fasteignasali
S. 863-0100 / 420-4000 - laugi@studlaberg.is.