Fasteignaleitin
Skráð 17. júlí 2026

Grandavegur 11

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
134.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
115.000.000 kr.
Fermetraverð
854.383 kr./m2
Fasteignamat
98.550.000 kr.
Brunabótamat
67.120.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Byggt 1989
3. hæð af 4
Garður
Svalir
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2025391
Landnúmer
105978
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Þakjárn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 111,8 fermetra 4ra herbergja endaíbúð með suðursvölum og gluggum í þrjár áttir á 3. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Grandaveg í Reykjavík, þar af 7,1 fermetra sérgeymsla á 1. hæð með opnanlegum glugga, auk 22,8 fermetra bílskúrs, samtals 134,6 fermetrar skráðir hjá HMS.
Bílskúrinn er 22,8 fermetrar að stærð með óskráðu millilofti yfir hluta og er með hita, rafmagni, rennandi vatni og tengi fyrir rafhleðslustöð. 

Eignin verður sýnd skv. nánara samkomulagi áhugasömum aðilum sem bóka skoðun í síma 570-4500 eða á netfanginu gtj@fastmark.is


Lýsing eignar:

Forstofa/hol, parketlagt, rúmgott og með fataskápum.
Þvottaherbergi, innaf holi er flísalagt.
Eldhús, parketlagt og bjart með glugga til suðurs. Fallegar hvítar innréttingar með nýlegu spanhelluborði, nýlegum ofni, tengi fyrir uppþvottavél og góðri borðaðstöðu.
Stofa, stór, parketlögð og björt með gluggum í þrjár áttir, útgengi á rúmgóðar svalir og útsýni til sjávar og að Reykjanesi.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott. 
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting og veggskápar með innbyggðri lýsingu og baðkar með sturtuaðstöðu.

Íbúðin var nýlega parketlögð með vönduðu Kährs eikarparketi og hefur verið vel við haldið.

Bílskúr, sem er 22,8 fermetrar að stærð, er með tengi fyrir rafhleðslustöð, mótor á hurð og rennandi heitu og köldu vatni. Óskráð geymsluloft er yfir hluta bílskúrs.

Á jarðhæð hússins eru:
Sérgeymsla, 7,1 fermetri að stærð með glugga og hillum.
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á framlóð.

Húsið að utan er nýlega múrviðgert og lítur vel út og til stendur að mála húsið að utan í sumar.

Lóðin er fullfrágengin, aðkoma góð og næg bílastæði á malbikuðu bílaplani framan við húsið.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í Vesturbænum þaðan sem stutt er í Háskóla Íslands. grunn- og leiskóla, Sundlaug Vesturbæjar, Melabúðina, Kaffi Vest o.fl. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu gtj@fastmark.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
31/10/200724.620.000 kr.35.000.000 kr.134.6 m2260.029 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1989
22.8 m2
Fasteignanúmer
2025391
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
9.670.000 kr.

Myndir (3)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vesturvin V3 íb 501
Bílastæði
Opið hús:20. júlí kl 17:00-17:30
Vesturvin V3 íb 501
101 Reykjavík
141 m2
Fjölbýlishús
312
1489 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (104)
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (104)
210 Garðabær
115.6 m2
Fjölbýlishús
322
907 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (201)
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (201)
210 Garðabær
128.8 m2
Fjölbýlishús
423
931 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureitur - D2-206
Opið hús:21. júlí kl 17:00-17:30
Orkureitur - D2-206
108 Reykjavík
143.3 m2
Fjölbýlishús
322
976 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin