Fasteignaleitin
Skráð 8. sept. 2026

Gylfaflöt 16-18

Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
550 m2
Verð
320.000.000 kr.
Fermetraverð
581.818 kr./m2
Fasteignamat
113.250.000 kr.
Mynd af Guðmundur Hallgrímsson
Guðmundur Hallgrímsson
Löggiltur fasteigna og skipasali
Byggt 2007
Jarðhæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2312423
Landnúmer
179492
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
03
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Gylfaflöt 16–18, Reykjavík – 550 m² atvinnuhúsnæði

Til sölu er snyrtilegt og vel staðsett 550m² atvinnuhúsnæði við Gylfaflöt 16–18 í Reykjavík. Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og hentar vel fyrir m.a. verslun, heildsölu, verkstæði, bílasölu, lager eða aðra atvinnustarfsemi.

Húsnæðið skiptist í þrjár aðskildar einingar, með snyrtilegu verslunar- og vinnurými að framan. Að aftan eru þrjár stórar innkeyrsluhurðir, ein fyrir hverja einingu, sem veita gott aðgengi fyrir vörur, bíla og annan búnað.

Fyrir framan húsið er stórt og gott bílaplan með góðu aðgengi og hentar það vel fyrir þá starfsemi sem krefst góðs aðgengis og bílastæða.

Eignin býður upp á áhugaverða möguleika til framtíðar þar sem mögulegt er að skipta henni upp í þrjár eignir. Kaupandi getur þannig nýtt allt húsnæðið undir eigin starfsemi, leigt út einstakar einingar eða, að uppfylltum skilyrðum, selt þær hverja fyrir sig.

Nú þegar eru veggir á milli einingar 1 og 2, auk þess sem að hluta er afmörkun á milli eininga 2 og 3, sem auðveldar frekari skiptingu og aðlögun húsnæðisins að mismunandi starfsemi.
Í húsnæðinu eru jafnframt milliloft sem ekki eru inni í skráðum 410 m², og gefa þau því möguleika á auknu geymslu- og vinnuplássi.

Um er að ræða fjölhæft atvinnuhúsnæði á góðum stað, með góðu aðgengi, stórum innkeyrsluhurðum, bílaplani og möguleika á þrískiptingu. Eignin gæti því hentað vel bæði fyrir rekstur og fjárfesta sem sjá tækifæri í að skipta húsnæðinu upp í sjálfstæðar einingar.

A.T.H Skv HMS er eignin skráð 410,30fm en einnig er um 150fm milliloft.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Hallgrímsson, lögg. fasteignasali, í síma 898-5115 eða á netfanginu gudmundur@fastlind.is
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali, í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/03/200854.210.000 kr.76.000.000 kr.410.3 m2185.230 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (13)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Búðareyri 4
Skoða eignina Búðareyri 4
Búðareyri 4
730 Reyðarfjörður
291,3 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 29.400.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Vættaborgir 56
Bílskúr
Opið hús:22. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Vættaborgir 56
Vættaborgir 56
112 Reykjavík
275,9 m2
Parhús
624
625 þ.kr./m2
172.500.000 kr.
Skoða eignina Fljótsbakki
Skoða eignina Fljótsbakki
Fljótsbakki
645 Fosshóll
436.202 m2
Atvinnuhúsn.
1416
0 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Naustabryggja 55
Hleðslustöð
Opið hús:19. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Naustabryggja 55
Naustabryggja 55
110 Reykjavík
133,4 m2
Fjölbýlishús
412
749 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin